Hettusótt greinist enn á Íslandi Atli Ísleifsson skrifar 14. ágúst 2015 09:45 Sóttvarnalæknir mælir með því að einstaklingar sem fæddir eru eftir 1980, sem ekki hafa verið bólusettir eða hafa ekki fengið hettusótt, láti bólusetja sig. Vísir/EPA
47 einstaklingar hafa greinst með hettusótt á landinu það sem af er ári. Landlæknisembættið greinir frá því að alls hafi ellefu einstaklingar verið greindir með hettusótt í maí, átján í júní og sextán í júlí. Langflestir af þeim sem hafa greinst eru á aldrinum 20 til 35 ára og eru 64 prósent smitaðra karlmenn. „Tíu einstaklingar (21%) eru með sögu um a.m.k. eina bólusetningu gegn hettusótt og er það í samræmi við fyrri fréttir um að bóluefnið gegn hettusótt veitir minni vernd en bóluefnið gegn mislingum og rauðum hundum sem eru í sömu sprautu. Þrátt fyrir að bólusettir einstaklingar geti veikst af hettusótt þá er bólusetning eini raunhæfi valkosturinn til að koma í veg fyrir sýkinguna. Eins og áður þá mælir sóttvarnalæknir með því að einstaklingar sem fæddir eru eftir 1980, sem ekki hafa verið bólusettir eða hafa ekki fengið hettusótt, láti bólusetja sig. Bólusetninguna má fá á heilsugæslustöðvum,“ segir í frétt á vef landlæmisembættisins. Hettusótt er bráð og mjög smitandi veirusýking og eru helstu einkenni hennar hiti, slappleiki, bólga og særindi í munnvatnskirtlum, höfuðverkur, erfiðleikar við að tyggja og lystarleysi. Nánar má lesa um hettusótt á vef landlæknis.
Hettusótt Heilbrigðismál Tengdar fréttir Ellefu greindir með hettusótt Grunur lék á að allt að 40 manns væru með hettusótt. 2. júní 2015 14:06 Neymar með hettusótt Neymar, framherji Barcelona, hefur verið greindur með hettusótt og gæti misst af byrjun tímabilsins á Spáni vegna veikindana. 9. ágúst 2015 13:30 Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira
Ellefu greindir með hettusótt Grunur lék á að allt að 40 manns væru með hettusótt. 2. júní 2015 14:06
Neymar með hettusótt Neymar, framherji Barcelona, hefur verið greindur með hettusótt og gæti misst af byrjun tímabilsins á Spáni vegna veikindana. 9. ágúst 2015 13:30