Hefur ekki skorað í 1438 mínútur Kristinn Páll Teitsson skrifar 19. ágúst 2015 07:00 Chuck hefur verið ískaldur fyrir framan markið undanfarin tvö ár. vísir/anton
Keflvíkingar sóttu sér töluverðan liðsstyrk áður en félagsskiptaglugginn lokaðist en þrátt fyrir það gengur liðinu bölvanlega að safna stigum. Spilamennska liðsins í undanförnum tveimur leikjum hefur verið betri en aðeins fengust tvö stig úr þeim og er liðið sjö stigum frá öruggu sæti þegar sex umferðir eru eftir. Forráðamenn Keflavíkur höfðu eflaust væntingar til þess að Chukwudi Chijindu, Chuck, myndi skjóta liðinu upp töfluna en bandaríski framherjinn hefur ekki náð neinum takti með liðinu. Chuck tókst loks að koma að marki gegn Fylki þegar hann lagði upp eitt mark en hann hefur ekki skorað í tæp tvö ár. Hefur hann alls leikið 1.438 mínútur án þess að skora mark í Pepsi-deildinni, með Þór og Keflavík, en hann komst síðast á blað í 1-2 sigri Þórs á ÍBV 28. september 2013. Ætli Keflvíkingar sér að eiga möguleika á að halda sæti sínu í Pepsi-deildinni á næsta ári verða að koma sigrar í næstu umferðum og verður því mikil pressa á framherjum liðsins að koma boltanum í netið.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Breiðablik átti sín augnablik Fótbolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Njarðvík - Stjarnan | Komast meistararnir í gang? Körfubolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Fleiri fréttir Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Sjá meira