Handbolti

Stephen Nielsen samdi við ÍBV

Stephen Nielsen fagnar hér ásamt fyrrum félögum sínum í Val.
Stephen Nielsen fagnar hér ásamt fyrrum félögum sínum í Val. vísir/vilhelm
ÍBV hefur náð samkomulagi við danska markvörðinn Stephen Nielsen sem lék með Valsmönnum á nýafstöðnu tímabili. Gengið var frá samningi þess efnis rétt í þessu.

Nielsen kom fyrst til landsins fyrir þremur árum og lék tvö tímabil með Fram áður en hann færði sig um set og samdi við Valsmenn.

Nielsen lék mjög vel með Valsmönnum í deildarkeppninni á síðustu leiktíð en varð að bíta í það súra epli ásamt félögum sínum að vera sópað úr úrslitakeppninni af Haukum.

Óhætt er að segja að ÍBV sé að styrkja sig verulega fyrir næstu leiktíð. Fyrir skemmstu samdi liðið við tvo sterka leikmenn, þá Kára Kristján Kristjánsson og Nemanja Malovic.

Svartfellska skyttan Malovic lék síðasta með ÍBV þegar liðið vann 1. deildina árið 2013 en þá skoraði hann 141 mark fyrir liðið og var markahæstur í 1. deildinni það tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×