Garðar líklega úr leik Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. júní 2015 09:00 Garðar í Evrópuleik gegn Inter í fyrra. vísir/andri marinó
Meiðsli Garðars Jóhannssonar, framherja Stjörnunnar í Pepsi-deild karla í fótbolta, eru alvarlegri en fyrst var haldið. Garðar hefur verið frá síðan hann fór meiddur af velli gegn Leikni í Borgunarbikarnum í byrjun mánaðarins. „Ég sleit nárann. Einn vöðvinn af þremur í náranum slitnaði alveg frá,“ segir Garðar í samtali við Fréttablaðið. „Það var kippt í mig þarna undir lok leiksins þannig að ég missti jafnvægið og datt á rassinn. Þar fór nárinn.“ Garðar segir lækna hafa reiknað með að hann yrði frá í 6-10 vikur, en Stjörnumenn voru að vonast eftir honum um miðjan júlí. „Ég held að þetta verði nú aldrei sex vikur. Nárinn getur oft verið mjög erfiður. Ég bara veit ekki hvenær ég get byrjað aftur. Fyrst átti ég að fara í aðgerð en svo vildu læknarnir ekki að ég færi í aðgerð. Þetta er voðalega skrítið allt saman,“ segir Garðar. Framherjinn öflugi, sem hefur spilað sex leiki í Pepsi-deildinni, þar af fimm sem varamaður, er alveg búinn undir það að spila ekki meira á þessari leiktíð. Meiðslin eru það slæm. „Það gæti alveg farið svo. Það yrði auðvitað gaman að spila aftur á þessu tímabili en ég geri mér engar vonir. Ef ég næ að spila eitthvað þá er það bara bónus,“ segir hann, en Garðar er ekkert að æfa með Stjörnunni. Hann getur ekki einu sinni hlaupið. „Ég get ekkert gert. Það er enginn kraftur í löppinni. Þetta á víst að geta gróið saman án aðgerðar þannig ég er bara í meðhöndlun þessar vikurnar,“ segir Garðar Jóhannsson við Fréttablaðið. Garðar var einnig mikið meiddur á síðustu leiktíð og spilaði þá aðeins níu leiki og skoraði tvö mörk
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Fram - Haukar 20-25 | Haukar bikarmeistarar í fyrsta sinn í átján ár Handbolti „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Fótbolti Í beinni: Stjarnan - Fram | Langþráður titill í húfi Handbolti Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Enski boltinn Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti Fleiri fréttir Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Sjá meira