Hrútar vinna til Un Certain Regard verðlaunanna á Cannes

Í Un Certain Regard flokknum eru veitt verðlaun í nokkrum flokkum og fékk Hrútar sjálf Un Certain Regard-verðlaunin (Prize of Un Certain Regard). Forseti dómnefndar var leik- og kvikmyndagerðarkonan Isabella Rossellini.
„Þetta er gríðarlegur heiður fyrir Grím, allt okkar góða fólk sem vann að myndinni með okkur, íslenska kvikmyndagerð og ekki síst íslensku sauðkindina,“ segir Grímur Jónsson, framleiðandi Hrúta, sem staddur er í Cannes, ásamt Grími leikstjóra og handritshöfundi.
Hrútar er önnur íslenska kvikmyndin sem kemst í Un Certain Regard keppnina. Árið 1993 komst hin goðsagnakennda mynd Sódóma Reykjavík eftir Óskar Jónasson þangað.
Kvikmyndin Stormviðri eftir Sólveigu Anspach var valin í Un Certain Regard árið 2003 en hún var frönsk framleiðsla og Dagur Kári Pétursson var valinn með dönsku myndina Voksne Mennsker árið 2005.
Grímur Hákonarson leikstýrir og skrifar handritið að Hrútum. Aðalframleiðandi myndarinnar er Grímar Jónsson fyrir Netop Films og meðframleiðendur eru hin dönsku Ditte Milsted og Jacob Jarek fyrir Profile Pictures. Þá er Þórir Snær Sigurjónsson einn af framleiðendum myndarinnar. Framleiðslustjórn er í höndum Evu Sigurðardóttur. Með aðalhlutverk fara Sigurður Sigurjónsson og Theodór Júlíusson. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Norðmannsins Sturla Brandth Grøvlen og Kristján Loðmfjörð sér um klippingu myndarinnar. Tónlist myndarinnar er samin af Atla Örvarssyni og hljóðhönnun er í höndum Huldars Freys Arnarssonar og Björns Viktorssonar.
Tengdar fréttir

Vinna Hrútar til verðlauna í Cannes í kvöld?
Úrslitin á kvikmyndahátíðinni í Cannes verða kunngjörð í kvöld og kemur þá í ljós hvort Hrútar vinni til verðlauna í Un Certain Regard hluta keppninnar.

Hrútar fengu frábærar viðtökur í Cannes í gær
Kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes við góðar undirtektir. Allir helstu aðstandendur myndarinnar viðstaddir.

Skarta skeggi á rauða dreglinum - Myndaveisla
Aðalleikararnir Sigurður Sigurjónsson og Theódór Júlíusson voru stórglæsilegir við frumsýningu Hrúta.

Sögulegir Hrútar í Cannes
Kvikmyndahatíðin í Cannes er haldin 13 – 24 maí þetta árið og er þetta 68 skiptið sem þessi virta hátíð er haldin. Íslendingar settu mark sitt á hátíðina í ár en í fyrsta sinn í 22 ár var íslensk mynd í aðalprógrammi hátíðarinnar, myndin Hrútar eftir Grím Hákonarson.

Hrútar fá frábæra dóma í erlendum miðlum
Dómar erlendu pressunnar um mynd Gríms Hákonarsonar eru afar jákvæðir.

Kindurnar með hreinum ólíkindum
Hrútar, kvikmynd Gríms Hákonarsonar, umturnaði Bárðardal á meðan á tökum stóð en bændur og kvikmyndagerðarmenn lögðust á eitt til að gera myndina að veruleika.