Haukar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta með sigri á Aftureldingu í þriðja leik liðanna að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Haukarnir, sem enduðu í 5. sæti Olís-deildarinnar, hafa spilað liða best í úrslitakeppninni og unnið alla sjö leiki sína. Vinni þeir í kvöld verður það í fjórða sinn sem liði er sópað í lokaúrslitunum.
Haukar hafa unnið leiki sína í úrslitakeppninni með fjórum mörkum að meðaltali. Haukarnir hafa skorað 186 mörk í leikjunum sjö (26,6) og fengið á sig aðeins 156 (22,3).
Janus Daði Smárason er markahæsti leikmaður Hauka í lokaúrslitunum með 11 mörk, þar af tvö úr vítaköstum. Janus hefur alls skorað 37/10 mörk í úrslitakeppninni, fimm mörkum minna en annar Selfyssingur, Árni Steinn Steinþórsson, sem er markahæstur Hauka í leikjunum sjö í úrslitakeppninni.
Janus Daði hefur nýtt 11 af 19 skotum sínum í leikjunum tveimur á móti Aftureldingu en hann skoraði meðal annars sigurmarkið í fyrsta leiknum í Mosfellsbænum.
Örn Ingi Bjarkason er langmarkahæstur í liði Aftureldingar með 47/8 mörk, þar af 10 í úrslitaeinvíginu. Örn Ingi skoraði 9 af 10 mörkum sínum í fyrsta leiknum.
Örn Ingi er hins vegar tveimur mörkum á eftir Sturlu Ásgeirssyni, hornamanni ÍR, sem er markahæsti leikmaður úrslitakeppninnar 2015 með 49/26 mörk.
Örn Ingi þarf því þrjú mörk til að verða markahæsti leikmaður úrslitakeppninnar í ár en fleiri gætu blandað sér í baráttunni takist Mosfellingum að vinna í kvöld og framlengja lokaúrslitin.
Markahæstu leikmenn lokaúrslitanna 2015:
Janus Daði Smárason, Haukum 11/2
Örn Ingi Bjarkason, Aftureldingu 10/4
Árni Steinn Steinþórsson, Haukum 9
Elvar Ásgeirsson, Aftureldingu 7
Einar Pétur Pétursson, Haukum 5
Adam Haukur Baumruk, Haukum 5
Árni Bragi Eyjólfsson, Aftureldingu 4
Jóhann Jóhannsson, Aftureldingu 4
Böðvar Páll Ásgeirsson, Aftureldingu 3
Gunnar Þórsson, Aftureldingu 3/1
Jón Þorbjörn Jóhannsson, Haukum 3
Elías Már Halldórsson, Haukum 3
Tjörvi Þorgeirsson, Haukum 3
Brynjólfur Snær Brynjólfsson, Haukum 3
Markahæstu leikmenn úrslitakeppninnar 2015:
Sturla Ásgeirsson, ÍR 49/26
Örn Ingi Bjarkason, Aftureldingu 47/8
Árni Steinn Steinþórsson, Haukar 42
Janus Daði Smárason, Haukar 37/10
Björgvin Hólmgeirsson, ÍR 33
Arnar Birkir Hálfdánsson, ÍR 32
Pétur Júníusson, Aftureldingu 31
Janus Daði markahæstur í lokaúrslitunum
Óskar Ófeigur Jónssin skrifar

Mest lesið


„Þá leið mér frekar illa eftir leik“
Fótbolti


Þeir bestu (1. sæti): Afrekaði allt
Íslenski boltinn

Fyrrum leikmaður Liverpool að ganga í raðir Stjörnunnar
Íslenski boltinn

Öll mörkin í Bestu: Stjarnan tætti KR í sig og ÍA valtaði yfir Blika
Íslenski boltinn

Bjarki var næstum því farinn í Val áður en gullöld ÍA hófst
Íslenski boltinn

Kaupa Delap og eru í viðræðum við Sancho
Enski boltinn


Skrifar undir fimm ára samning við Liverpool
Enski boltinn