Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar hafa gengið frá samningum við tvo leikmenn um að leika með liðinu í Pepsi-deild kvenna í sumar. Þetta kemur fram á Fótbolta.net.
Umræddir leikmenn heita Shannon Woeller og Beverly Leon en þær verða löglegar með Stjörnuliðinu frá og með morgundeginum.
Þær gætu leikið sinn fyrsta leik með Stjörnunni þegar liðið mætir Breiðabliki í Meistarakeppni KSÍ á föstudaginn en búist er við að þessi lið berjist um Íslandsmeistaratitilinn í sumar.
Shannon, sem er 25 ára, er kanadískur varnarmaður. Hún lék síðast með Grand Bodö í norsku úrvalsdeildinni.
Beverly er 23 ára gamall sóknarmaður frá Bandaríkjunum.
Íslandsmeistararnir bæta við sig

Tengdar fréttir

Stjarnan Lengjubikarmeistari kvenna
Íslands- og bikarmeistararnir unnu 3-0 sigur á Breiðabliki í úrslitaleiknum.