Virkjun heimiluð í friðlýstri laxveiðiá Kristján Már Unnarsson skrifar 12. mars 2015 11:20 Frá Raundalsá á Hörðalandi. Vatnasvið hennar var friðlýst árið 1986.
Ríkisstjórn Noregs hefur veitt heimild til virkjanaframkvæmda í Raundalselva, sem er friðlýst laxveiðiá á Hörðalandi norðaustur af Bergen, milli Sognfjarðar og Harðangursfjarðar. Í frétt á vef NRK, norska ríkisútvarpsins, kemur fram að Vatna- og orkustofnun Noregs hafi lagst gegn því að lítil virkjun, sem þar var fyrir, yrði nífölduð að stærð en olíu- og orkumálaráðuneytið hafi samþykkt framkvæmdirnar. Virkjunin er við Palmafoss en áformað er að hún verði stækkuð og raforkuframleiðslan aukin úr 1,8 gígavattstundum á ári upp í 16,3 gígavattstundir. Það þýðir að mun stærri hluti af rennsli árinnar verður virkjaður. NRK segir óvenjulegt að ráðuneyti samþykki framkvæmdir sem undirstofnun hafi hafnað.Gamla virkjunin við Palmafoss er frá árinu 1919.Mynd/Voss Energi.Umhverfisdeild fylkismannsins á Hörðalandi hafði þó minni efasemdir um virkjunina en Vatna– og orkustofnunin, þrátt fyrir að vatnasviðið væri friðlýst og laxastofn árinnar talinn viðkvæmur. Þar segjast menn sáttir við þær varnir sem orkufyrirtækið Voss Energi hyggst beita til að hindra að laxinn lendi í túrbínum virkjunarinnar. Ráðuneytið segir virkjunarleyfið meðal annars byggt á yfirlýsingum bæði Fylkismannsins og Umhverfisstofnunar Noregs um að skilyrði laxastofnsins í ánni muni ekki versna. Svæðið væri auk þess þegar raskað og minna rennsli á fossinum gæti auðveldað laxagöngur. Ný orkulög, sem hin rauðgræna ríkisstjórn Stoltenbergs setti fyrir fjórum árum, um svokölluð græn orkuskírteini, hafa hleypt miklum krafti í virkjanaframkvæmdir í landinu. Þau niðurgreiða endurnýjanlega orkugjafa og samkvæmt úttekt þarlends háskóla í fyrra eru uppi áform um að virkja tuttugu teravattstundir til viðbótar í Noregi á næstu árum. Það er næstum tvöfalt meira vatnsafl en búið er virkja á Íslandi.
Tengdar fréttir Norðmenn virkja meira, nýjasta stíflan 50 m há Tími stórvirkjana er liðinn, sagði Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í áramótaávarpi árið 2001. Það reyndist ekki alveg rétt. 21. apríl 2014 14:30 Engin mótmæli gegn nýjustu stíflu Noregs Ný virkjun sem verið er að taka í notkun í Noregi þessa dagana er með stærstu stíflu sinnar tegundar sem reist hefur verið þar í landi frá því hin umdeilda Alta-virkjun var gangsett fyrir þrjátíu árum. 12. maí 2014 21:15 Mest lesið Ekkert tillit tekið til aðstæðna og ljóst að vöruúrval minnki Viðskipti innlent Brutu lög við söluna á Íslandsbanka og greiða yfir 60 milljónir í sektir Viðskipti innlent Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Viðskipti erlent Pakkarnir séu langt frá því að vera sambærilegir Viðskipti innlent Síminn má dreifa efni Sýnar Viðskipti innlent Segir búið að „dauðadæma Vefjuna“ vegna ummæla Reynis Viðskipti innlent Hryllingssögur og dæmi: „Slúbbertar halda heilu stofnunum í gíslingu“ Atvinnulíf Húrra opnar þriðju verslunina á höfuðborgarsvæðinu Viðskipti innlent Segir félaginu skylt að skipta sér af „sorgarvegferð“ Play Viðskipti innlent Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Neytendur Fleiri fréttir Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira
Norðmenn virkja meira, nýjasta stíflan 50 m há Tími stórvirkjana er liðinn, sagði Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í áramótaávarpi árið 2001. Það reyndist ekki alveg rétt. 21. apríl 2014 14:30
Engin mótmæli gegn nýjustu stíflu Noregs Ný virkjun sem verið er að taka í notkun í Noregi þessa dagana er með stærstu stíflu sinnar tegundar sem reist hefur verið þar í landi frá því hin umdeilda Alta-virkjun var gangsett fyrir þrjátíu árum. 12. maí 2014 21:15