Geir fékk hjálp úr óvæntri átt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. mars 2015 19:47 Eiríkur Stefán Ásgeirsson. Vísir/Getty
Magdeburg, lið Geirs Sveinssonar, vann í kvöld öruggan sigur á Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni á heimavelli, 36-24. Hamburg batt enda á ellefu leikja sigurgöngu Magdeburg í deildinni í síðustu umferð og síðarnefnda liðið tapaði þá þriðja sæti deildarinnar til Flensburg, sem lærisveinar Geirs höfðu unnið skömmu áður. Flensburg tapaði í kvöld óvænt dýrmætu stigi í baráttunni er liðið gerði jafntefli við Erlangen, sem er í næstneðsta sæti deildarinnar, 22-22. Flensburg og Magdeburg eru því jöfn að stigum í 3.-4. sæti deildarinnar með 39 stig hvort. Rhein-Neckar Löwen komst á toppinn með sigri á Minden á heimavelli, 28-23, en Kiel getur endurheimt toppsætið með sigri á Lübbecke, sem nú stendur yfir. Alexander Petersson skoraði fjögur mörk fyrir Löwen í kvöld og Stefán Rafn Sigurmannsson eitt. Füchse Berlin er í sjöunda sætinu eftir sigur á Wetzlar í kvöld, 32-24. Dagur Sigurðsson er þjálfari Berlínarrefanna sem hafa verið á fínu skriðu að undanförnu, ef frá er talið fjórtán marka tap gegn Kiel í síðustu umferð. Í B-deildinni hafði Íslendingaliðið Emsdetten betur gegn Bad Schwartau, 32-25. Ernir Hrafn Arnarson skoraði fjögur mörk fyrir Emsdetten, Anton Rúnarsson þrjú, Oddur Gretarsson tvö en Ólafur Bjarki Ragnarsson ekkert. Aue, lið Rúnars Sigtryggssonar, vann Eintracht Baunatal, 34-26. Hörður Sigþórsson skoraði þrjú mörk í leiknum en fékk að líta rautt spjald fyrir þrjár brottvísanir í leiknum. Bjarki Már Gunnarsson skoraði tvö mörk en Árni Sigtryggsson ekkert. Sveinbjörn Pétursson markvörður sat á bekknum að þessu sinni. Aue er í níunda sæti deildarinnar með 30 stig en Emsdetten í ellefta sæti með 27 stig.
Handbolti Mest lesið Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Fótbolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Íslenski boltinn Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Handbolti Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi Íslenski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Sjá meira
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn