Dustin Johnson tryggði sér sinn níunda titil á PGA-mótaröðinni í kvöld en hann lék best allra á Cadillac meistaramótinu sem fram fór á Doral vellinum.
Fyrir lokahringinn hafði Bandaríkjamaðurinn J.B. Holmes fimm högga forskot á næstu menn sem var þó fljótt að fara á fyrri níu holunum sem hann lék á þremur höggum yfir pari.
Það nýtti Johnson sér en hann lék mjög stöðugt golf og kom inn á 69 höggum eða þremur undir pari. Það dugði til þar sem staða J.B. Holmes vænkaðist lítið á seinni níu holunum en hann náði þó öðru sætinu á átta höggum undir pari á meðan að Johnson sigraði á níu undir pari.
Sigurinn kemur aðeins mánuði eftir að Johnson snéri aftur á PGA-mótaröðina en hann tók sér hálfs árs frí frá keppnisgolfi vegna persónulegra ástæðna sem sumir fréttamiðlar fullyrtu að væri vegna eiturlyfjafíknar.
Það gengur samt greinilega allt upp hjá þessum högglanga kylfingi þessa dagana en fyrir sigurinn fær hann rúmlega 180 milljónir króna í sinn hlut.
Dustin Johnson át upp fimm högga forskot J.B. Holmes á lokahringnum á Doral

Mest lesið



Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra
Íslenski boltinn

Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga
Íslenski boltinn




Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi
Íslenski boltinn


„Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“
Fótbolti