Bresk þingnefnd sakaði endurskoðunarfyrirtækið Price waterhouse Cooper (PwC) um meiriháttar skattaundanskot í skýrslu sem kom út í dag. AP greinir frá.
Endurskoðunarnefnd þingsins óskaði eftir því að stjórnvöld gerðu meira til að koma berjast til skattaundanskotum.
Fyrirtækið var sakað um að hafa gefið sig út fyrir að auðvelda fyrirtækjum skattaundanskot. Það væri gert með lánum milli fyrirtækis og dótturfélags sem flyttu hagnað þeirra til Lúxemborg, þar sem hægt væri að greiða mun lægri skatta.
Formaður nefndarinnar. Margaret Hodge, sagði að fyrirtækið hefði valdið því að fjölþjóðleg stórfyrirtæki greiddu mun lægri skatt í löndunum þar sem hagnaður þess yrði til en efni stæðu til.
PwC sagðist ósammála niðurstöðu nefndarinnar en sögðust þó sammála því að breska skattkerfið væri of flókið.
PwC sakað um aðstoð við meiriháttar skattaundanskot

Mest lesið

Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist
Viðskipti innlent


Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum
Viðskipti erlent

Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna
Viðskipti innlent

Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka
Viðskipti innlent

Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun
Viðskipti innlent

Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent
Viðskipti innlent

Síðasti dropinn á sögulegri stöð
Viðskipti innlent

Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið
Viðskipti innlent

Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni
Viðskipti innlent