Guðjón Valur: Verðum ekki heimsmeistarar í einum leik

Ísland fékk tækifæri til að vinna leikinn í gær en Thierry Omeyer varði þvingað skot Arons Pálmarssonar á lokasekúndunum. Leikurinn hafði verið jafn og spennandi allan leikinn og frammistaða Íslands sú langbesta í keppninni til þessa.
Það síðastnefnda gladdi Guðjón Val fyrst og fremst. „Auðvitað vill maður vinna alla leiki og vera í efsta sæti riðilsins en við verðum ekki heimsmeistarar í einum leik.“
„Við þurfum að bæta okkur og geta átt ákveðin öryggisnet sem hægt er að leita í ef illa gengur. Við þurfum að vera með hluti í sóknarleiknum sem við vitum að gengur vel ef vörn og markvarsla er stöðug.“
„Allt þetta þarf að vera til staðar í úrslitakeppninni og þangað ætlum við okkur - í 16-liða úrslitin.“
Ísland steinlá fyrir Svíþjóð í fyrsta leik sínum á mótinu en vann svo sigur á Alsír eftir erfiða byrjun í þeim leik. „Við grófum okkur ákveðna gryfju gegn Svíum og það var ekki auðvelt að koma okkur upp úr henni eins og sást gegn Alsír.“
„En mér finnst að við séum á réttri leið. Það breytir því þó ekki að næsti leikur byrjar í stöðunni 0-0. Þá er um að gera að koma okkur á eins góðan stað og við getum fyrir 16-liða úrslitin og þá fyrst byrjar mótið.“
Ísland mætir Tékklandi í Al Sadd hölinni á morgun. Tékkar eru enn stigalausir í riðlinum og þurfa að vinna leikinn til að halda í vonina um sæti í 16-liða úrslitunum.
Tengdar fréttir

Aron Kristjáns: Erfitt að stöðva ísskápinn á línunni
Landsliðsþjálfarinn var ánægður með sterkan leik strákanna í jafnteflinu gegn Frakklandi.

Sverre: Gott að vera svekktur eftir jafntefli við Frakka
Varnarjaxlinn pirraður á línunni sem dómararnir hafa tekið á mótinu.

Jafntefli við Frakka í Katar | Sjáðu myndirnar
Myndaveisla frá Evu Björk Ægisdóttur úr leik Íslands og Frakklands á HM 2015 í Katar í gær.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Frakkland - Ísland 26-26 | Besta frammistaða strákanna í jafnteflisleik
Evrópumeistarar Frakklands þurftu allt sitt og meira til gegn góðu íslensku liði í Duhail.

Strákarnir sendu skýr skilaboð til hinna liðanna
Strákarnir okkar náðu loksins að sýna sitt rétta andlit á HM í Katar en Ísland var hársbreidd frá því að landa sigri gegn Evrópumeisturum Frakka. "Skref, en bara eitt skref, í rétta átt,“ segir landsliðsþjálfarinn eftir leik.

Aron hefur átt þátt í flestum mörkum allra á HM
Stórskytta íslenska liðsins fer á kostum í Katar.

Guðjón Valur: Er með fleiri sár á tungunni en oftast áður
„Afi minn heitinn væri ekki ánægður ef ég færi að kvarta undan dómurunum.“

Einkunnir Gaupa: Þrír nálægt fullu húsi
Aron Pálmarsson, Snorri Steinn Guðjónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson báru af í íslenska liðinu gegn Frakklandi.

Snorri Steinn: Við vorum flottir
Snorri Steinn Guðjónsson var ánægður með leik íslenska landsliðsins gegn því franska í Doha í kvöld.

Arnór: Megum ekkert vera of góðir með okkur
Skyttan öfluga var kátur með hvernig liðið kláraði sóknirnar gegn Frakklandi.

Björgvin: Síðasta sem fer hjá þessum gaurum er sjálfstraustið
Landsliðsmarkvörðurinn ánægður með að sjá íslensku geðveikina aftur komna.

Róbert: Enginn vissi hvað mátti gera
Róbert Gunnarsson var svekktur með að hafa ekki unnið Evrópumeistara Frakka á HM í Katar í kvöld.