Leikur Þýskalands og Sádí-Arabíu í uppnámi? Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar 23. janúar 2015 12:00 Abdullah bin Abdulaziz á góðri stundu með George W. Bush.
Abdullah bin Abdulaziz, konungur Sádí-Arabíu, lést í gær níræður að aldri. Þetta gæti haft áhrif á leik handboltaliðs þjóðarinnar gegn Þýskalandi á HM í Katar á morgun. Jarðarför Abdullah fer fram á morgun og var Bernhard Bauer, forseti þýska handknattleikssambandsins, spurður á blaðamannafundi þýska liðsins hvort að leikurinn væri mögulega í hættu. „Við verðum að bíða og sjá til en við höfum ekkert heyrt frá IHF [Alþjóða handknattleikssambandinu],“ sagði Bauer á fundinum í morgun. „Þetta hefur skiljanlega áhrif á leikmenn liðsins þegar þjóðarleiðtoginn fellur frá. Við erum hér í næsta landi við Sádí-Arabíu og alls óvíst hvað gerist.“ Dagur sagði að liðið myndi haga undirbúningi sínum eins og venjulega en leikmenn fá þó frí í dag til að safna kröftum. „Við verðum bara að bíða og sjá til hvað gerist en þangað til sinnum við okkar störfum eins og venjulega.“ Bauer hrósaði þýska landsliðinu mikið fyrir frammistöðuna á HM í Katar en liðið er í efsta sæti D-riðils með sjö stig af átta mögulegum. Liðinu dugar sigur gegn stigalausu liði Sádí-Arabíu til að tryggja sér efsta sæti riðilsins. „Þetta er ótrúlega mikilvægt fyrir handboltann - að sýna við eigum heima í hópi bestu liða heims. Andstæðingar okkar hafa virðingu fyrir okkur og það hef ég sjálfur merkt hér úti. Þýskaland er komið aftur á meðal þeirra bestu og að fá hrós frá okkar andstæðingum er mikið lof,“ sagði Bauer. „Við getum verið meira en ánæægð með frammistöðu okkar til þessa og þýska þjóðin bíður spennt eftir næstu leikjum.“
HM 2015 í Katar Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira