Guðmundur í læknisskoðun hjá Nordsjælland Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. janúar 2015 13:30 Guðmundur Þórarinsson var lykilmaður hjá U21 árs landsliðinu í síðustu undankeppni. vísir/daníel
Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Þórarinsson, sem hefur leikið með Sarpsborg í Noregi undanfarin tvö ár, er á leið til danska úrvalsdeildarliðsins Nordsjælland. Samkvæmt heimildum Vísis er Guðmundur í læknisskoðun hjá danska liðinu, en það hefur náð saman við Sarpsborg um kaupverð. Selfyssingurinn, sem er 22 ára gamall, hefur spilað frábærlega fyrir Sarpsborg undanfarin tvö tímabil, en hann spilaði 59 af 60 leikjum liðsins í norsku úrvalsdeildinni síðustu tvö ár og alla sem byrjunarliðsmaður. Guðmundur á að baki fjórtán leiki fyrir U21 árs landslið Íslands og tvo leiki fyrir A-landsliðið. Hann var í hópnum sem mætti Kanada í tveimur vináttuleikjum í síðustu viku. Nordsjælland, sem er þjálfað af Ólafi Kristjánssyni, er í fimmta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar eftir 17 umferðir. Deildin er í vetrarfríi, en hún hefst aftur 20. febrúar með leik Nordsjælland og Randers. Hjá Norsjælland hittir Guðmundur fyrir tvo Íslendinga; Guðjón Baldvinsson, sem Ólafur fékk frá Halmstad í Svíþjóð, bakvörðin unga Adam Örn Arnarson sem kom til liðsins frá Breiðabliki og markvörðinn Rúnar Alex Rúnarsson.
HM 2015 í Katar Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City - PSG | Evrópumeistararnir heimsækja Manchester Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki LASK - Liverpool | Mæta laskaðir til leiks Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Sjá meira