
Horner: Vettel íhugaði að hætta í Formúlu 1

Horner, liðsstjóri Red Bull segir Vettel hafa orðið svo afhuga Formúlu 1 að hann hafi íhugað að leggja hjálminn á hilluna aðeins 26 ára.
„Hann var ekki ánægður með stefnuna sem F1 var að taka. Fjögur árin þar á undan höfðu gengið svo vel, með bíl sem hann elskaði að keyram svo breyttust hlutirnir mjög mikið skyndilega. Þá vöknuðu spurningar sem hann þurfti að svara. Hann leitaði upprunans, ók gó-kart bílum á miðju tímabili og fann aftur neistan sem kom honum þangað sem hann er og ástríðuna fyrir Formúlu 1,“ sagði Horner.
Margir spekingar höfðu spáð því að Vettel þyldi mótlæti illa. Hann átti erfitt tímabil og brást við með því að rifta samningi og skipta um lið. Vettel mun nú reyna að gera það sama og hetjan hans, Michael Schumacher, koma Ferrari aftur í stöðu yfirburða liða í Formúlu 1. Það eru átta ár síðan ítalski risinn landaði titili.
Tengdar fréttir

Horner: Slakt gengi 2014 gerir Vettel betri
Liðsstjóri Red Bull, Christian Horner telur að fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hafi grætt á erfiðleikum liðsins á árinu.

20 Formúlu 1 keppnir 2015
Keppnisdagatal ársins hefur tekið breytingum keppnirnar verða 20 en ekki 21 eins og til stóð. Ekkert verður af Kóreu kappakstrinum.

Marchionne býst við Ferrari í fremstu röð undir lok tímabilsins
Forseti Ferrari Sergio Merchionne segi að lokakeppnir ársins verði spennandi fyrir liðið. Hann telur að þá komi í ljósútkoma endurreisnar liðsins.

Ecclestone: Ég held að Hamilton verði meistari 2015
Bernie Ecclestone, formúlueinráður telur að Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari tryggji sér sinn þriðja titil í ár. Ecclestone segir að Hamilton sé "góður meistari“ fyrir íþróttina.

Ferrari staðfestir komu Vettel
Sebastian Vettel mun aka fyrir Ferrari næstu þrjú árin.

Ricciardo: Ég vil berjast um heimsmeistaratitilinn
Daniel Ricciardo varð þriðji í keppni ökumanna í fyrra og var sá eini sem vann keppnir fyrir utan Mercedes ökumennina Lewis Hamilton og Nico Rosberg.

Ég er ekki töframaður
Nýr liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segist ekki geta gert nein kraftaverk fyrir næsta tímabil og því verði það líklega erfitt fyrir ítalska liðið.