Systurnar sameinaðar á ný Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2015 16:00 Heiða Dröfn Antonsdóttir. Mynd/Youtube
Dætur Ragnheiðar Víkingsdóttur, eins sigursælasta leikmanns kvennaliðs Vals frá upphafi, munu aftur spila hlið við hlið á næsta tímabili, því báðar hafa þær skrifað undir samning við Pepsi-deildar lið Vals. Valsmenn segja frá því á heimasíðu sinni að Heiða Dröfn Antonsdóttir sé komin aftur heim í Val eftir dvöl hjá Fylki, í Svíþjóð og nú síðast hjá FH þar sem hún var fyrirliði á liðinni leiktíð. Áður hafði yngri systir hennar, Hildur Antonsdóttir, framlengt samning sinn við Val. Heiða Dröfn Antonsdóttir er 23 ára gömul og á að baki 11 leiki með Val í efstu deild, þann síðasta sumarið 2010. Hún er alls komin með 72 leiki í úrvalsdeild kvenna. Hildur Antonsdóttir er þremur árum yngri og spilar vanalega aðeins aftar á vellinum en stóra systir en báðar eru þær miðjumenn. Hildur hefur spilað 61 leik í efstu deild og alla fyrir Val. Ragnheiður Víkingsdóttir átti þátt í ellefu fyrstu stóru titlum Valskvenna á árunum 1978 til 1995 en þann síðasta vann hún sem þjálfari liðsins. Valur hefur síðan bætt við tólf stórum titlum. Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Heiðu Dröfn Antonsdóttur sem var sett inn á Youtube-síðu Knattspyrnufélagsins Vals.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings