Lazarov með tíu mörk í fyrsta leik – rautt á Rutenka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2015 15:52 Siarhei Rutenka fékk rautt fyrir þetta brot. Vísir/AFP
Makedónía, Spánn og Slóvenía unnu öll fyrsta leik sinn á HM í handbolta í Katar en heimsmeistaramótið er nú komið í fullan gang. Kiril Lazarov skoraði 10 mörk fyrir Makedóníu þegar liðið vann átta marka sigur á Túnis, 33-25, í fyrsta leik sínum á HM í handbolta. Makedónía var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 18-14. Makedóníumenn breyttu stöðunni úr 25-21 í 30-21 með því að skora fimm mörk um miðjan seinni hálfleikinn. Kiril Lazarov skoraði mörkin sín 10 úr 17 skotum en þeir Filip Mirkulovski og Dejan Manaskov skoruðu báðir sex mörk fyrir lið Makedóníu. Issam Tej var markahæstur hjá Túnis með sex mörk.Heimsmeistarar Spánverja unnu á sama tíma fimm marka sigur á Hvít-Rússum, 38-33, en Hvít-Rússarnir stóðu í spænska liðinu þrátt fyrir að missa stjörnuleikmann sinn Siarhei Rutenka útaf með rautt spjald snemma leiks. Spánverjar voru 21-17 yfir í hálfleik en Hvít-Rússar náðu að minnka muninn í eitt mark, 32-21, þegar níu mínútur voru eftir af leiknum. Spænska liðið vann hinsvegar lokamínútur leiksins 6-2 og vann því nokkuð sannfærandi sigur á endanum. Jorge Maqueda og Julen Aguinagalde skoruðu báðir sex mörk fyrir spænska liðið en Aliaksandr Tsitou og Siarhei Shylovich voru markahæstir hjá Hvít-Rússum með fimm mörk hvor.Dragan Gajic skoraði níu mörk þegar Slóvenía vann þrettán marka sigur á Síle, 36-23, en liðin eru í A-riðli. Slóvenar voru 16-14 yfir í hálfleik en gerðu út um leikinn með því að skora átta fyrstu mörkin í seinni hálfleiknum.
HM 2015 í Katar Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira