Þjálfari Belgíu: Fáir veikleikar í íslenska liðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar frá Brüssel skrifar 12. nóvember 2014 07:30 Marc Wilmots, landsliðsþjálfari Belgíu, segir Moussa Dembélé, leikmanni liðsins, til á æfingu. Dembélé er fyrrverandi samherji Gylfa Þórs Sigurðssonar. vísir/Getty
Óhætt er að fullyrða að lið Belgíu gegn Íslandi í kvöld sé skipað gríðarlega öflugum leikmönnum. „Það eru nokkrar breytingar á liðinu frá síðasta leik, gegn Bosníu, en það veikir liðið ekkert,“ sagði Lars Lagerbäck við Fréttablaðið í gær. „En það gagnast okkur vel að spila gegn bestu þjóðum heims og það er besta leiðin til að þróa leik liðsins.“ Miðja belgíska liðsins er gríðarlega öflug með þá Moussa Dembélé og Marouane Fellaini í fararbroddi en þeim er ætlað það hlutverk að brjóta niður sóknarleik íslenska liðsins. Fyrir framan þá er Chelsea-maðurinn Eden Hazard og er með Alex Witsel og Adnan Januzaj með sér til að styðja við sóknarmanninn Christian Benteke. „Ég vil að mínir menn haldi því skipulagi sem lagt er upp með,“ sagði Wilmots við Fréttablaðið á blaðamannafundi belgíska liðsins á Koning Boudewijn-leikvanginum í Brussel í gær. „Ef við spilum sem lið gefur það tækifæri fyrir einstaklingana að blómstra.“ Belgía gerði 1-1 jafntefli gegn Bosníu í áðurnefndum leik en vann þar að auki sannfærandi 6-0 sigur á Andorra í riðlinum. Það eru einu leikir þess í undankeppni EM 2016 til þessa þar sem viðureign Belgíu og Ísraels var frestað. Á sunnudag mæta Belgar liði Wales sem trónir á toppi B-riðils með sjö stig af níu mögulegum. Wilmots leggur því mikla áherslu á að liðið sé vel upplagt fyrir þann leik.Fáir veikleikar hjá Íslandi „Allt miðast við leikinn gegn Wales en ég á von á því að við fáum erfiðan leik gegn Íslandi á morgun [í kvöld]. Það eru ekki miklir veikleikar í íslenska liðinu, enda með marga góða og hættulega knattspyrnumenn.“ Moussa Dembélé tók í svipaðan streng á blaðamannafundinum. „Við viljum vinna, auðvitað. Það verður ekki auðvelt en við verðum á heimavelli og sjálfstraustið í liðinu er gott,“ sagði hann en í kvöld hittir hann fyrir Gylfa Þór Sigurðsson, sinn gamla félaga frá Tottenham. „Ég þekki Gylfa og [Aron Einar] Gunnarsson persónulega og veit hversu góðir leikmenn þeir eru. Það eru margir góðir leikmenn í liðinu eins og úrslitin hafa sýnt,“ bætti hann við.Prófraun fyrir helgina Wilmots segist líta á þennan leik líkt og um mótsleik væri að ræða. „Þetta verður kjörið tækifæri fyrir alla leikmenn sem fá að spila til að sýna sig. Það er mikil samkeppni í hópnum og ég þarf að taka erfiðar ákvarðanir. Leikurinn verður góð prófraun á liðið fyrir leikinn gegn Wales.“ Vincent Kompany spilar ekki með Belgum í kvöld vegna meiðsla en vonir eru bundnar við að hann verði með í leiknum á sunnudag. Meðal annarra leikmanna sem byrja á bekknum í kvöld má nefna Nacer Chadli, Kevin De Bruyne, Romelu Lukaku, Divock Origi og Radja Nainggolan en sá síðastnefndi leikur með Roma á Ítalíu og skoraði mark Belgíu gegn Bosníu.
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Kompany spilar ekki gegn Íslandi Fyrirliði Manchester City að glíma við meiðsli í kálfa. 11. nóvember 2014 10:00 Jón Daði íhugar samningstilboð frá Viking Gekk betur að spila með landsliðinu en félagsliðinu sínu í Noregi. 11. nóvember 2014 18:15 Ógnarsterkt byrjunarlið hjá Belgum gegn Íslandi Marc Wilmots, landsliðsþjálfari Belga, tilkynnti nú í hádeginu byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun. 11. nóvember 2014 12:23 Alfreð: Moyes örugglega góður kostur Það hefur á ýmsu gengið hjá Real Sociedad, liði Alfreðs Finnbogasonar á Spáni. Jagoba Arrasate var rekinn úr stöðu knattspyrnustjóra á dögunum og var David Moyes, fyrrum stjóri Man. Utd, ráðinn í starfið í gærkvöldi. Það lá þó ekki fyrir er Fréttablaðið hitti á Alfreð í gær. 11. nóvember 2014 07:00 Gummi Ben lýsir leik Tékklands og Íslands á Bylgjunni Útvarpslýsingar Gumma Ben slógu í gegn fyrr á árinu og nú verður framhald á. 11. nóvember 2014 09:03 Kennslustund Bales nýttist landsliðinu okkar vel Íslenska landsliðið hefur haldið hreinu í 422 mínútur eða í níu síðustu hálfleikjum sem liðið hefur spilað. Á sama tíma hefur íslenska liðið skorað tíu mörk í röð án þess að mótherjarnir hafi svarað. 11. nóvember 2014 08:00 Jóhann Berg: Dapurt ef ég hefði ekki samglaðst Jóhann Berg Guðmundsson er aftur kominn í íslenska landsliðið eftir meiðsli. 11. nóvember 2014 17:45 Hólmar Örn: Áttum að setjast niður í dag Var rokinn af stað í Noregi aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann fékk símtalið frá KSÍ. 11. nóvember 2014 09:30 Kári: Líklega heppinn að deyja ekki í þessum leik Kári Árnason, leikmaður Rotherham í Englandi, reiknar ekki með öðru en að verða klár í slaginn þegar Ísland mætir Tékklandi í undankeppni EM 2016 á sunnudagskvöld. Hann verður þó ekki með er strákarnir mæta Belgíu í vináttulandsleik ytra annað kvöld. 11. nóvember 2014 06:00 Ólafur Ingi veiktist í nótt Er tæpur fyrir leikinn gegn Belgíu á morgun sem og Sölvi Geir Ottesen. 11. nóvember 2014 14:49 Dembele: Læt Gylfa finna fyrir mér Moussa Dembele segir það hafa verið leitt að sjá eftir Gylfa Þór Sigurðssyni frá Tottenham. 11. nóvember 2014 19:15 Viðar: Heitu pottarnir seljast eins og heitar lummur Sló í gegn í norsku úrvalsdeildinni í vetur en veit ekki hvað tekur við. 11. nóvember 2014 08:38 Mest lesið „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Íslenski boltinn Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Enski boltinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Körfubolti Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Íslenski boltinn Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Enski boltinn Í beinni: Sunderland - Arsenal | Gerir Xhaka gamla liði sínu skráveifu? Enski boltinn Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Í beinni: Sunderland - Arsenal | Gerir Xhaka gamla liði sínu skráveifu? Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Inter missti niður tveggja marka forskot Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Sædís og Arna fengu silfrið en Diljá meiddist Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Rekinn aðeins sex mánuðum eftir að hann yfirgaf Liverpool Mamma og pabbi í stúkunni þegar Emelía skoraði þrennuna í bikarnum Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Sjá meira
Kompany spilar ekki gegn Íslandi Fyrirliði Manchester City að glíma við meiðsli í kálfa. 11. nóvember 2014 10:00
Jón Daði íhugar samningstilboð frá Viking Gekk betur að spila með landsliðinu en félagsliðinu sínu í Noregi. 11. nóvember 2014 18:15
Ógnarsterkt byrjunarlið hjá Belgum gegn Íslandi Marc Wilmots, landsliðsþjálfari Belga, tilkynnti nú í hádeginu byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun. 11. nóvember 2014 12:23
Alfreð: Moyes örugglega góður kostur Það hefur á ýmsu gengið hjá Real Sociedad, liði Alfreðs Finnbogasonar á Spáni. Jagoba Arrasate var rekinn úr stöðu knattspyrnustjóra á dögunum og var David Moyes, fyrrum stjóri Man. Utd, ráðinn í starfið í gærkvöldi. Það lá þó ekki fyrir er Fréttablaðið hitti á Alfreð í gær. 11. nóvember 2014 07:00
Gummi Ben lýsir leik Tékklands og Íslands á Bylgjunni Útvarpslýsingar Gumma Ben slógu í gegn fyrr á árinu og nú verður framhald á. 11. nóvember 2014 09:03
Kennslustund Bales nýttist landsliðinu okkar vel Íslenska landsliðið hefur haldið hreinu í 422 mínútur eða í níu síðustu hálfleikjum sem liðið hefur spilað. Á sama tíma hefur íslenska liðið skorað tíu mörk í röð án þess að mótherjarnir hafi svarað. 11. nóvember 2014 08:00
Jóhann Berg: Dapurt ef ég hefði ekki samglaðst Jóhann Berg Guðmundsson er aftur kominn í íslenska landsliðið eftir meiðsli. 11. nóvember 2014 17:45
Hólmar Örn: Áttum að setjast niður í dag Var rokinn af stað í Noregi aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann fékk símtalið frá KSÍ. 11. nóvember 2014 09:30
Kári: Líklega heppinn að deyja ekki í þessum leik Kári Árnason, leikmaður Rotherham í Englandi, reiknar ekki með öðru en að verða klár í slaginn þegar Ísland mætir Tékklandi í undankeppni EM 2016 á sunnudagskvöld. Hann verður þó ekki með er strákarnir mæta Belgíu í vináttulandsleik ytra annað kvöld. 11. nóvember 2014 06:00
Ólafur Ingi veiktist í nótt Er tæpur fyrir leikinn gegn Belgíu á morgun sem og Sölvi Geir Ottesen. 11. nóvember 2014 14:49
Dembele: Læt Gylfa finna fyrir mér Moussa Dembele segir það hafa verið leitt að sjá eftir Gylfa Þór Sigurðssyni frá Tottenham. 11. nóvember 2014 19:15
Viðar: Heitu pottarnir seljast eins og heitar lummur Sló í gegn í norsku úrvalsdeildinni í vetur en veit ekki hvað tekur við. 11. nóvember 2014 08:38