Framkvæmdin heppnaðist fullkomlega

Fimleikasamband Íslands stendur þó uppi sem sigurvegari eftir helgina en það fékk einróma lof allra þeirra sem komu að mótinu fyrir framkvæmd þess. „Þetta heppnaðist fullkomlega,“ sagði Arnar Ólafsson, formaður Fimleikasambands Íslands, í samtali við Fréttablaðið í gær.
Hann segir að allar tímaáætlanir hafi staðist og að öll vandamál sem hafi komið upp hafi verið leyst eins fljótt og auðið var. Sjö hundruð erlendir keppendur komu með 700 manna fylgdarlið auk þess sem erlendir áhorfendur voru á annað þúsund.
Arnar segir það mikilvægt að Fimleikasambandið hafi sýnt að það sé hægt að halda stór alþjóðleg íþróttamót á Íslandi með góðum árangri. Meðal sjálfboðaliða á mótinu voru aðilar bæði frá Íþróttasambandi fatlaðra og Körfuknattleikssambandi Íslands til að kynnast framkvæmd mótsins af fyrstu hendi.
„Það er alltaf gott þegar íþróttahreyfingin stendur saman og óskandi að þetta sé vísir að frekara samstarfi á milli sérsambandanna innan ÍSÍ,“ segir Arnar sem var afar þakklátur fyrir störf allra þeirra tæplega 500 sjálfboðaliða sem störfuðu á mótinu.
„Alls voru þetta 1.100 stöðugildi sem þurfti að manna og langflestir þeirra sem stóðu vaktina voru úr fimleikahreyfingunni,“ segir Arnar.
Á næsta ári verður Norðurlandamótið í hópfimleikum haldið hér á landi og þó svo að það verði ekki jafn stórt í sniðum verða þar öll sterkustu liðin mætt til leiks. „Það verður mikil flugeldasýning þó svo að umgjörðin verði ekki jafn stór,“ segir Arnar og bætir við að fimleikasambandið horfi jafnvel til þess að halda fleiri mót í framtíðinni.
„Það kæmi vel til greina af okkar hálfu að halda hér einnig mót í áhaldafimleikum en við þurfum örugglega að bíða í minnst tíu ár þar til EM í hópfimleikum kemur aftur til Íslands enda mikil eftirspurn eftir að halda mótið,“ segir hann.
Ekki hefur enn verið ákveðið hvar EM í hópfimleikum fari fram árið 2016.
Tengdar fréttir

Auðvitað ætla þær að vinna gullið á heimavelli
Evrópumeistaramótið í hópfimleikum hefst í Laugardalshöllinni í dag. Fimm íslensk lið taka þátt í því.

Frjálsíþróttahöllin að breytast í fimleikahöll - myndir
Evrópumótið í hópfimleikum fer fram á Íslandi í næstu viku en mótið hefst á miðvikudaginn og lýkur síðan á laugardaginn. Mótið fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal sem er nú kominn í sparibúninginn.

Danir hlutskarpastir
Danir unnu fimm af sex gullverðlaununum sem í boði voru á Evrópumótinu í hópfimleikum í karlaflokki sem fram fóru í í Laugardal í vikunni og um helgina.

Stelpurnar stóðu á tám í fimm mínútur
Stelpurnar fóru í viðtal til Hauks Harðarsonar á RÚV og þurftu að standa á tám.

Blandaða liðið komst örugglega í úrslit - Harpa illa meidd
Hafnaði í fjórða sæti í forkeppninni á eftir Norðmönnum.

Brons-stúlkurnar á flugi í Höllinni | Myndir
Glæsilegar myndir frá æfingum stúlknalandsliðsins í hópfimleikum sem fékk brons á EM í kvöld.

EM í hópfimleikum: Sif ætlar að skila gullinu í þriðja skipti
Aðeins vika er í að tíunda Evrópumótið í hópfimleikum hefjist í Laugardalshöll. Keppni stendur yfir dagana 15. til 18. október.

Stelpurnar klæðast 66°Norður eins og þegar þær urðu Evrópumeistarar
Íslensku landsliðin ætla sér stóra hluti á Evrópumótinu í hópfimleikum sem hefst í Laugardalshöll næstkomandi miðvikudag en fimm íslensk lið keppa á mótinu.

Sjáðu myndasyrpuna úr Laugardalnum í dag
Það var mikið um dýrðir í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag þegar tvöfaldir Evrópumeistarar Íslands stigu á stokk í úrslitum á EM í hópfimleikum. Mótið hefur staðið yfir í Laugardalnum síðan á miðvikudaginn.

Finn ekki fyrir löppunum og held fyrir andlitið
"Þetta verður svakalega spennandi keppni,“segir Íris Mist Magnúsdóttir um einvígið á milli Íslands og Svíþjóðar í kvennaflokki á Evrópumótinu í hópfimleikum sem fer fram "Fimleikahöllinni“ í Laugardal í dag.

Blandað lið unglinga fékk bronsið
Danir Evrópumeistarar í blönduðum flokki unglinga á EM 2014.

Þjálfarinn sáttur með sínar stúlkur
Bjarni Gíslason, einn þjálfara íslenska kvennalandsliðsins, sagði flest hafa gengið upp í úrslitunum á EM í hópfimleikum í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í dag.

Glódís: Förum brosandi frá mótinu
Glódís Guðgeirsdóttir gat litið á björtu hliðarnar þrátt fyrir að Ísland hefði lent í 2. sæti á EM í hópfimleikum.

Myndasyrpa úr Laugardal
Evrópumótinu í hópfimleikum lauk í Laugardal í gær, en þar var mikið fjör og mikil stemning. Íslenska landsliðið lenti í öðru sæti eftir hetjulega baráttu við Svía.

Íslensku stelpurnar eru spenntar fyrir morgundeginum
Úrslitin ráðast í kvennaflokki á EM í hópfimleikum á morgun, en keppt er í Frjálsíþróttahöllini í Laugardal, sem hefur verið breytt í fimleikahöll.

Ísland í 5. sæti í blönduðum flokki | Danir vörðu titilinn
Danir vörðu titil sinn í blönduðum flokki á EM í hópfimleikum sem fer fram í Laugardalnum í dag.

Blandað lið unglinga í öðru sæti eftir forkeppnina
Drengjaliðið keppti í fyrsta skipti á Evrópumóti.

Ísland átti þrjá fulltrúa í liði mótsins á EM
Evrópumótinu í hópfimleikum lauk í gær eins og flestum er kunnugt um. Í fyrsta sinn var valið lið mótsins og besta fimleikfólkið á hverju áhaldi fékk verðlaun.

Þórdís: Nutum hverrar mínútu
Þórdís Ólafsdóttir, fyrirliði íslenska liðsins í blönduðum flokki, var nokkuð sátt með frammistöðu Íslands á lokadegi EM í hópfimleikum sem hefur staðið yfir í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal síðan á miðvikudaginn.

Stúlkurnar í þriðja sæti eftir forkeppnina
Fyrsta keppnisdegi á tíunda Evrópumótinu í hópfimleikum sem fram fer í Laugardalshöll er lokið.

Hlutir sem gengu ekki upp sem komu okkur svolítið á óvart
Björn Björnsson, einn af þjálfurum íslenska kvennalandsliðsins í fimleikum, segir mikinn spenning fyrir morgundeginum þegar úrslitin ráðast á EM í hópfimleikum sem fer fram hér á landi.

Sif: Við látum ekkert koma okkur úr jafnvægi
Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum tryggði sér örugglega sæti í úrslitum EM í hópfimleikum í gær en liðið endaði í 2. sæti í undankeppninni.

Stúlkurnar fengu brons á EM
Unglingalandslið kvenna í hópfimleikum varði ekki Evrópumeistaratitilinn á heimavelli.

Stelpurnar í öðru sæti eftir forkeppnina | Sjáðu myndirnar
Evrópumeistarar Íslands fengu hæstu einkunn fyrir gólfæfingar í forkeppni EM 2014 í Laugardalnum í kvöld.

Sólveig: Höllin trylltist við hverja lendingu
Sólveig Bergsdóttir og félagar hennar í íslenska landsliðinu í hópfimleikum fengu góðan stuðning þegar undankeppni Evrópumótsins fór fram í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Íslenska liðið náði 2. sæti og tryggði sig örugglega inn í úrslitin.

Við njótum hverrar sekúndu
Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum hefur keppni á Evrópumeistaramótinu í dag en mótið fer fram í Laugardalshöll.

Ísland í öðru sæti | Svíar tóku gullið í kvennaflokki
Íslandi tókst ekki að verja Evrópumeistaratitilinn í hópfimleikum.

Stúkan komin upp í Frjálsíþróttahöllinni | Myndband
Evrópumótið í hópfimleikum hefst á miðvikudaginn og stendur til laugardags.