Heilsumeðferðin sem Jónína fylgir og hefur mikla trú á hefur verið þróuð og notuð af pólsku læknunum Dr. Dabrowska og Dr. Lemienzky. Þeir hafa áratuga reynslu af því sem kallast hreinsandi læknisfræðileg fasta.
„Heilsumeðferðin er einstaklingsmiðuð,“ útskýrir Jónína. „Hún hefur skilað einstaklega góðum árangri en hún miðar að því að virkja sjálfslækningarkerfi líkamans með föstu. Með föstunni eru skapaðar þannig aðstæður að líkaminn heilar sig sjálfur og vinnur bug á ýmsum kvillum sem eru fyrir hendi. Full meðferð, sem mælt er með, tekur að minnsta kosti tvær vikur. Ef um alvarlega sjúkdóma er að ræða er fólk undir læknishendi í allt að sex vikur.“
Jónína segir að hún hafi fundið fyrir fordómum í garð heilsumeðferðarinnar en þeir stafi af vanþekkingu. „Talað er um stólpípumeðferð sem er auðvitað rangt, eins og þeir þekkja sem hafa prófað þessa meðferð. Ég hef reyndar aldrei á ævi minni séð stólpípu,“ segir Jónína en bætir við að hún sé orðin vön endalausum fordómum í sinn garð.
„Fordómar eru aldrei af hinu góða. Margir vita að fasta getur hjálpað fólki með lífsstílssjúkdóma og því líður mun betur með breyttu mataræði. Fólk á að hafa val um leiðir til bættrar heilsu. Ekki veitir af í þjóðfélagi þar sem ofþyngd er alvarlegt vandamál.
Sumt heilbrigðisstarfsfólk er uppfullt af hroka og fordómum gagnvart óhefðbundnum lækningaaðferðum. Lyfjaneysla hér á landi er óhófleg og læknar flýja landið,“ segir hún. Jónína bendir á að þegar hún fór að kenna spinning hér á landi fyrir mörgum árum hafi hún þurft að berjast við sams konar fordóma.

„Meðferðin byggist á föstu með ákveðnu mataræði, lífrænt ræktuðu grænmeti og ávöxtum. Fitubrennslan fer hratt af stað. Fyrstu dagana getur fólk fundið fyrir orkuleysi, hungri og höfuðverk. Einkennin hverfa á 2-3 dögum. Svefninn batnar og fólk verður orkumeira. Áreynsluþol eykst, liðverkir og húðblettir minnka. Bólgur hverfa yfirleitt og einkenni sykursýki og hjartasjúkdóma minnka.
Meðfram hollu mataræði er ráðlagt að hreyfa sig með göngum, leikfimi eða þeirri hreyfingu sem hentar hverjum og einum. Þá er boðið upp á heit böð, slökun og bólgulosandi meðferðir og nudd. Sannkallað dekur.
Með föstunni losnar um uppsafnaðan úrgang líkamans og fólk finnur fljótt fyrir betri heilsu. Líkaminn getur misst hæfileikann til að hreinsa sig sjálfur. Auk þess er mikil fræðsla og fróðlegir fyrirlestrar á hverjum degi um mataræði og breyttan lífsstíl að ógleymdum skemmtikvöldum. Það er afar ljúft að vera á heilsuhóteli þar sem stjanað er við mann á allan hátt.
Jónína býður upp á tvö hótel í Póllandi. Einnig er hún með meðferð á Hótel Örk í Hveragerði. Næsta námskeið verður 7. nóvember í tvær vikur eða eftir hentugleika.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðunni joninaben.is
„Ég hef farið í detoxmeðferð (eða frí eins og ég lít á það) einu sinni á ári síðan 2009. Það á stóran þátt í bættri líðan minni. Þetta eru engin geimvísindi. Ég set mig í fyrsta sæti og losa mig við eiturefnin í líkamanum með því að fara til Jónínu minnst einu sinni á ári.“
Friðrik Ómar Hjörleifsson

Bergþóra G. Bergsteinsdóttir