„Þarna fengum við tækifæri til að hitta og kynna verk okkar fyrir þverskurðinum af þeim sem starfa í þessum skemmtanabransa, framleiðendum, leikstjórum, rithöfundum og svo var náttúrulega öll leikaraflóran. Það er aðeins ákveðnum hóp boðið að koma, allir sem tilnefndir eru og bara allir sem gegna mikilvægu hlutverki í þessum bransa. Ameríkaninn er jú voða afdráttarlaus í sínum skoðunum og óhætt að segja að viðbrögðin sem við fengum voru margfalt á við það sem við bjuggumst við.
Þetta var bara svakalega stórt klapp á bakið á 5 mínútna fresti, alveg svakalegt að upplifa það,“ segir Magni, en meðal stjarnanna sem mættu voru De Laria og Selenis Leyva úr Orange Is the New Black og Mad Men-leikkonan Teyonah Parris. Þær eru allar komnar í Kron by Kronkron ásamt tugum annarra.


Útsendarar frá stórleikkonunni Sharon Stone komu á kynninguna og tóku myndir. Daginn eftir rigndi inn tölvupóstum frá henni því leikkonan gjörsamlega heillaðist af hönnun þeirra. Fjöldi stílista mætti á kynninguna, þar á meðal einn stærsti og vinsælasti stílistinn í Hollywood. „Þetta opnaði rosa margar dyr,“ segir Magni.
„Síðan þá er bara nýtt ævintýri á hverjum degi og bara svo yndislegt að sjá hvað viðtökurnar eru sterkar og hvað allir vilja okkur vel. Bara dásamlegt.“
Hægt er að fylgjast með ævintýrinu á Instagram síðu Kron by Kronkron, þar eru þau dugleg að birta myndir af því sem er að gerast hjá þeim.