Auglýsing Hannesar vann markaðsverðlaun UEFA - sjáið hana hér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. nóvember 2014 13:22 Hannes Þór Halldórsson. Vísir/Anton
KSÍ og Icelandair unnu markaðsverðlaunin hjá UEFA fyrir auglýsingu sem landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson leikstýrði en þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Auglýsingaherferðin „Við erum öll í sama liði" sem Icelandair framleiddi í samstarfi við KSÍ vann „Creativity and innovation award" á KISS verðlaunahátíðinni sem evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, stendur fyrir. Verðlaunahátíðin er haldin á tveggja ára fresti. Í niðurstöðu dómnefndar segir að auglýsingin sýni gott samstarf á milli Icelandair og KSÍ en auglýsingin fékk verðlaun í flokknum „Sponsor activation" og er það líka mikil viðurkenning fyrir Icelandair að fá þessi verðlaun. Það komu margir að þessu verkefni en þar á meðal voru liðsmenn Tólfunnar áberandi í auglýsingunni, leikmenn landsliðanna tveggja og þjálfarar auk þess að starfsfólk KSÍ lagði hönd á plóg. Auglýsingin var tekin upp frá sjónhorni landsliðsfólksins sjálfs og sá sem horfir á hana fær það beint í æð hvernig er það að spila með íslenska landsliðinu í fótbolta. Það má sjá þessa skemmtilegu auglýsingu hér fyrir neðan. Það var framleiðslufyrirtækið Saga Film sem hafði veg og vanda af gerð auglýsingarinnar með Íslensku auglýsingastofunni og markaðsdeild Icelandair. Verðlaunin voru afhent í Cascais í Portúgal og tóku Hilmar Þór Guðmundsson og Ómar Smárason frá KSÍ við verðlaununum.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Íslenski boltinn Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Enski boltinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Körfubolti Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Íslenski boltinn Dramatík í uppbótartíma Enski boltinn Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Enski boltinn „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Enski boltinn „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ Sjá meira