Bjarni Ben: „Þetta er áfall fyrir okkur öll“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 12. nóvember 2014 17:01 „
Aðalatriði málsins eru þau að það er nú upplýst að sá sem treysti á sanngjarna málsmeðferð í dómsmálaráðuneytinu fékk ekki slíka meðferð. Það var brotið á rétti hans og hefur verið fært réttilega til ábyrgðar á aðstoðarmanninum,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra í samtali við fréttastofu að þingflokksfundi loknum. Um reglulegan þingflokksfund sjálfstæðismanna var að ræða en andrúmsloftið var sérstakt í ljósi tíðinda dagsins. Aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, Gísli Freyr Valdórsson, var fyrr í dag dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að leka upplýsingum um hælisleitanda til fjölmiðla. Á fundinum lýstu sjálfstæðismenn yfir fullum stuðningi við Hönnu Birnu til að starfa áfram í ríkisstjórn.Hanna Birna Kristjánsdóttir gengur út af þingflokksfundi sjálfstæðismanna í dag.vísir/vilhelm„Staða ráðherrans var rædd og ráðherrann sjálfur vildi gera hreint fyrir sínum dyrum. Það er að segja greina nákvæmlega frá málinu eins og það horfir við henni. Við ræddum það og ræddum um pólitíska ábyrgð. Ráðherrann fékk mikinn stuðning í þingflokknum og hefur minn stuðning alveg óskoraðan til að halda áfram sínum störfum,“ sagði Bjarni. Aðspurður hvort allir þingmenn Sjálfstæðisflokks hefðu lýst yfir stuðningi við Hönnu Birnu svaraði Bjarni: „Það voru þingmenn sem tóku ekki til máls á fundinum. Við getum orðað það þannig.“ Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lýsti yfir því í síðustu viku að hann væri þeirrar skoðunar að Hanna Birna ætti að víkja í ljósi þess að ráðherra bæri hlutlæga ábyrgð á aðstoðarmanni sínum. Í samtali við fréttastofu sagðist hann enn vera þeirrar skoðunar en hann sé þó samþykkur stuðningsyfirlýsingu sjálfstæðismanna. Bjarni segist vera sammála því að ráðherra beri ábyrgð á pólitískt ráðnum aðstoðarmanni, en hvernig axla eigi ábyrgð sé annað mál. Hanna Birna hafi axlað sína ábyrgð með því að segja sig frá dómsmálunum. Hvort hún muni taka þau að sér aftur sé ekki ljóst á þessum tímapunkti, það sé mál sem hann og forsætisráðherra þurfi að taka til umræðu. „Hún var ekki kosin oddviti okkar Sjálfstæðismanna og fyrsti þingmaður Reykjavíkinga af tilviljun. Það er vegna þess að hún er leiðtogi og stjórnmálaskörungur sem að á fullt erindi og þó að þetta mál sé áfall fyrir hana og okkur að þá er ekki tilefni fyrir ráðherrann til annars en að halda ótrauð áfram,“ sagði Bjarni.
Lekamálið Tengdar fréttir Gísli Freyr bað samstarfsfólkið afsökunar Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, bað samstarfsfólk sitt í innanríkisráðuneytinu afsökunar á lekanum í morgun. 12. nóvember 2014 13:22 Dómur kveðinn upp í dag: Farið fram á þriggja ára fangelsi Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari sagði að játning Gísla Freys geti ekki talist til refsimildunar þar sem Gísli hafi ekki breytt afstöðu sinni fyrr en ljóst var að sönnunargögn nægðu til sakfellingar. 12. nóvember 2014 10:11 Gísli Freyr er sáttur við dóminn Gísli Freyr Valdórsson ætlar að una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og áfrýjar ekki til Hæstaréttar. Segist hafa fests í lygavef og vítahring. 12. nóvember 2014 13:51 Svona var atburðarásin í lekamálinu Gagnvirk tímalína sem sýnir atburðarásina í lekamálinu sem varð til þess að Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. 12. nóvember 2014 12:04 Ráðherra gerði athugasemd við haldlagningu á tölvu Gísla Freys Saksóknari fann ný gögn á tölvu Gísla Freys um helgina. 12. nóvember 2014 11:21 Verjandi Gísla Freys fékk gögnin afhent klukkan þrjú í gær Er ekki sammála því að þessi nýju gögn taki af allan vafa um að Gísli hafi lekið trúnaðargögnunum. 12. nóvember 2014 08:57 "Góður maður hengdur“ Margir félagar Gísla Freys Valdórssonar vilja rísa upp honum til varnar og telja dóminn yfir honum þungan. 12. nóvember 2014 16:01 Sjálfstæðismenn lýsa yfir fullum stuðningi við Hönnu Birnu Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sagði í samtali við fréttastofu að víðtækur stuðningur við ráðherrann væri innan þingflokksins. 12. nóvember 2014 15:34 Spenna í loftinu meðal sjálfstæðismanna Fundur þingflokks Sjálfstæðismanna hófst klukkan 13:20 í Alþingishúsinu og stendur nú yfir. 12. nóvember 2014 13:25 „Stolt eiginkona Gísla sem gerðist maður að meiri að viðurkenna mistök sín“ Rakel Lúðvíksdóttir, eiginkona Gísla Freys Valdórssonar, lýsir yfir fullum stuðning við eiginmann sinn á samskiptamiðlinum Facebook. 12. nóvember 2014 10:03 Gögn sýna fram á rangar staðhæfingar Gísla Freys Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, hefur viðurkennt að hafa látið fjölmiðlum í té persónuupplýsingar um hælisleitandann Tony Omos. 12. nóvember 2014 07:00 Gísli Freyr í skilorðsbundið átta mánaða fangelsi Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 12. nóvember 2014 11:00 Gísli Freyr grét í dómsal Eiginkona hans þerraði tárin á hvarmi hans að fyrirtöku lokinni. 12. nóvember 2014 11:43 Fíladelfíusöfnuðurinn stendur með Gísla Frey „Við viljum sjá hann vinna sig í gegnum þessa erfiðleika sem hann stendur í núna. Við þekkjum hann af góðu einu,“ segir formaður stjórnar Fíladelfíu. 12. nóvember 2014 13:11 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halla ein án fasts nefndarsætis eftir Framsóknarkapal Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Sjá meira
Gísli Freyr bað samstarfsfólkið afsökunar Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, bað samstarfsfólk sitt í innanríkisráðuneytinu afsökunar á lekanum í morgun. 12. nóvember 2014 13:22
Dómur kveðinn upp í dag: Farið fram á þriggja ára fangelsi Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari sagði að játning Gísla Freys geti ekki talist til refsimildunar þar sem Gísli hafi ekki breytt afstöðu sinni fyrr en ljóst var að sönnunargögn nægðu til sakfellingar. 12. nóvember 2014 10:11
Gísli Freyr er sáttur við dóminn Gísli Freyr Valdórsson ætlar að una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og áfrýjar ekki til Hæstaréttar. Segist hafa fests í lygavef og vítahring. 12. nóvember 2014 13:51
Svona var atburðarásin í lekamálinu Gagnvirk tímalína sem sýnir atburðarásina í lekamálinu sem varð til þess að Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. 12. nóvember 2014 12:04
Ráðherra gerði athugasemd við haldlagningu á tölvu Gísla Freys Saksóknari fann ný gögn á tölvu Gísla Freys um helgina. 12. nóvember 2014 11:21
Verjandi Gísla Freys fékk gögnin afhent klukkan þrjú í gær Er ekki sammála því að þessi nýju gögn taki af allan vafa um að Gísli hafi lekið trúnaðargögnunum. 12. nóvember 2014 08:57
"Góður maður hengdur“ Margir félagar Gísla Freys Valdórssonar vilja rísa upp honum til varnar og telja dóminn yfir honum þungan. 12. nóvember 2014 16:01
Sjálfstæðismenn lýsa yfir fullum stuðningi við Hönnu Birnu Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sagði í samtali við fréttastofu að víðtækur stuðningur við ráðherrann væri innan þingflokksins. 12. nóvember 2014 15:34
Spenna í loftinu meðal sjálfstæðismanna Fundur þingflokks Sjálfstæðismanna hófst klukkan 13:20 í Alþingishúsinu og stendur nú yfir. 12. nóvember 2014 13:25
„Stolt eiginkona Gísla sem gerðist maður að meiri að viðurkenna mistök sín“ Rakel Lúðvíksdóttir, eiginkona Gísla Freys Valdórssonar, lýsir yfir fullum stuðning við eiginmann sinn á samskiptamiðlinum Facebook. 12. nóvember 2014 10:03
Gögn sýna fram á rangar staðhæfingar Gísla Freys Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra, hefur viðurkennt að hafa látið fjölmiðlum í té persónuupplýsingar um hælisleitandann Tony Omos. 12. nóvember 2014 07:00
Gísli Freyr í skilorðsbundið átta mánaða fangelsi Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 12. nóvember 2014 11:00
Gísli Freyr grét í dómsal Eiginkona hans þerraði tárin á hvarmi hans að fyrirtöku lokinni. 12. nóvember 2014 11:43
Fíladelfíusöfnuðurinn stendur með Gísla Frey „Við viljum sjá hann vinna sig í gegnum þessa erfiðleika sem hann stendur í núna. Við þekkjum hann af góðu einu,“ segir formaður stjórnar Fíladelfíu. 12. nóvember 2014 13:11