Handbolti

Í lagi með augað á Alexander

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alexander á ferðinni í leiknum gegn Ísrael.
Alexander á ferðinni í leiknum gegn Ísrael. vísir/vilhelm
Alexander Petersson meiddist í fyrri hálfleik í landsleik Íslands og Ísraels og spilaði ekki meira í þeim leik.

Meiðslin voru á auga og þess eðlis að menn óttuðustu um þáttöku hans í leiknum gegn Svartfjallalandi á sunnudag.

„Hann fékk harpix í augað en er búinn að jafna sig. Hann er farinn að sjá eðlilega aftur," segir Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari við Vísi.

Þrátt fyrir það er ekki hundrað prósent að hann geti spilað af fullum krafti þó svo hann ferðist með liðinu út í dag.

„Hann er eitthvað slappur og líklega með smá flensu. Við vonumst eftir því að hann hristi það af sér og verði klár í slaginn."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×