Yfirvöld í Ungverjalandi undirbúa nú skattlagning flutnings gagna á internetinu. Samkvæmt frumvarpi sem lagt var fram á þinginu þar í landi í gær, verður skatturinn 37 pens eða um 71,5 krónur á hvert gígabæt.
Nokkrum klukkustundum eftir að frumvarpið varð opinbert höfðu hundrað þúsund manns skráð sig inn á Facebook síðu gegn frumvarpinu. Neytendur telja að fjarskiptafyrirtæki muni færa skattinn yfir á sig, samkvæmt Reuters fréttaveitunni. Búið er að boða til mótmæla við efnahagsráðuneyti Ungverjalands á sunnudaginn.
Á undanförnum árum hafa yfirvöld í Ungverjalandi lagt sérstaka skatta á fyrirtæki í orku- og bankageiranum. Auk þess hafa þeir einnig lagt skatta á fyrirtæki í fjarskiptageiranum.
Mihaly Varga, efnahagsráðherra Ungverjalands, varði ætlanir stjórnvalda í gær og sagði fjarskiptatækni hafa breytt neyslumynstri fólks. Því þyrfti að breyta skattalöggjöfinni í samræmi við það. Hann sagði að skatturinn myndi afla ríkissjóði um 200 milljörðum forinta, eða um 100 milljörðum króna.
Ráðgjafarfyrirtækið eNet segir þó að gagnaflutningar í fyrra hafi verið um 1.33 milljarðar gígabæta. Þó hafi umferðin aukist og því sé líklegt að skatturinn myndi skila meira en 200 milljörðum í ríkissjóð.
Reuters segir tekjur allra fjarskiptafyrirtækja í Ungverjalandi sem halda út netþjónustu hafa verið einungis 164 milljarðar forinta í fyrra.
Vinna að skattlagningu gagnaflutninga
Samúel Karl Ólason skrifar

Mest lesið

Sólon lokað vegna gjaldþrots
Viðskipti innlent

Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura
Viðskipti innlent

„Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart
Viðskipti innlent

Buffett hættir sem forstjóri við lok árs
Viðskipti erlent


Ráðin hagfræðingur SVÞ
Viðskipti innlent

Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl
Viðskipti innlent

Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni
Viðskipti erlent


Óttast ekki komu Starbucks til Íslands
Viðskipti innlent