Ragnar og félagar töpuðu fyrsta leiknum sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2014 14:35 Ragnar Sigurðsson. Vísir/Getty
Ragnar Sigurðsson og félagar í rússneska liðinu Krasnodar töpuðu 2-4 á heimavelli á móti þýska liðinu Wolfsburg í 3. umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í Rússlandi í dag. Ragnar spilaði allan leikinn í miðri vörn Krasnodar-liðsins sem hafði gert jafntefli í tveimur fyrstu leikjum sínum í riðlinum. Ragnar fékk meðal annars gult spjald á 56. mínútu. Andreas Granqvist, fyrirliði Krasnodar, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 37. mínútu og Kevin De Bruyne kom Wolfsburg síðan í 2-0 með marki eftir aðeins 39 sekúndna leik í seinni hálfleik. Andreas Granqvist skoraði hjá báðum liðum í þessum leik því hann minnkaði muninn í 2-1 með marki úr vítaspyrnu á 51. mínútu en Luiz Gustavo kom þýska liðinu í 3-1 með glæsilegu marki á 64. mínútu. Kevin De Bruyne, sem er fyrrum leikmaður Chelsea, skoraði síðan fjórða mark á 80. mínútu en varamaðurinn Wanderson náði að minnka muninn fyrir rússneska liðið fjórum mínútum fyrir leikslok.Fjölmargir leikir fara fram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld og býður íþróttavefur Vísis lesendum sínum upp á að fylgjast með þeim öllum samtímis. Neðst í fréttinni má sjá sjálfvirka uppfærslu á helstu atvikum í leikjunum. Hinir leikir kvöldsins hefjast síðan annarsvegar klukkan 17.00 og hinsvegar klukkan 19.05 en eins og áður eru leikjum Evrópudeildarinnar skipt niður í tvo hópa á leikdögum. Svo nægir að smella á viðkomandi leik til að fá frekari upplýsingar - byrjunarlið, skiptingar, spjöld og mörk.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira