Svoboda og MacKenzie leiða á Seaside fyrir lokahringinn 26. október 2014 12:07 Will MacKenzie átti tilþrif dagsins á þriðja hring. AP
Andrew Svoboda og Will MacKenzie deila efsta sætinu fyrir lokahringinn á McGladrey Classic mótinu sem fer fram í kvöld en eftir þrjá hringi á Seaside vellinum í Georgíufylki eru þeir á 12 höggum undir pari. Þriðji hringurinn verður eflaust lengi í minni MacKenzie því hann fór holu í höggi á hinni 160 metra löngu 6. holu sem lagði grunninn að frábærum hring upp á 65 högg eða fimm undir pari.Russell Henley, sem leiddi fyrir þriðja hring, er einn í þriðja sæti á 11 höggum undir pari en nokkrir kylfingar deila fjórða sætinu á níu höggum undir. Meðal þeirra er sigurvegari síðasta árs, Chris Kirk og reynsluboltinn Stewart Cink sem lék frábærlega í gær, á 63 höggum eða á sjö undir pari. Það stefnir því allt í spennandi lokahring sem verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 18:00 í kvöld.
Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Þjálfari Vals ekki með atvinnuleyfi og þarf að fara úr landi Körfubolti Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi Enski boltinn „Schumacher lét mér finnast ég vera gagnslaus og hæfileikalaus“ Formúla 1 Langlíklegast að Ísland fari í umspil í mars og lítinn HM-riðil Fótbolti Fyrsta stóra fótboltafélagið sem yfirgefur X-ið: „Hatursvél“ Fótbolti United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enski boltinn Svona var blaðamannafundur KSÍ í Podgorica Fótbolti Elliði segir HM ekki í hættu Handbolti LeBron gefur vísbendingu hvenær hann hættir Körfubolti Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira