Paul McGinley hrósað í hástert fyrir frammistöðu Evrópuliðsins 28. september 2014 21:02 McGinley fær kampavínssturtu frá liðsmönnum sínum. AP/Getty
Evrópska Ryder-liðið tryggði sér stórglæsilegan sigur á því bandaríska á Gleneagles í dag en eftir þrjá daga af mögnuðu golfi og mikilli dramatík enduðu leikar 16.5-11.5, Evrópu í vil. Fyrirliða liðsins, Paul McGinley hefur verið hrósað mikið fyrir frammistöðuna um helgina, bæði fyrir liðsval sitt og það jákvæða andrúmsloft sem augljóslega hefur ríkt innan herbúða liðsins. Rory McIlroy var einn af þeim sem hafði ekkert nema jákvætt um fyrirliðann að segja. „Ég get ekki lýst því hvað McGilney hefur verið frábær fyrir okkur alla vikuna, allt sem hann hefur gert hefur hjálpað liðinu að spila sitt besta golf og ég er stoltur yfir því að vera liðsmaður í liðinu hans. Hann hefur svo sannarlega séð um öll smáatriðin og undirbúið okkur vel.“ Sergio Garcia, Jamie Donaldson og Ian Poulter tóku undir með McIlroy en sjálfur segist McGinley vera stoltur að hafa fengið tækifærið til þess að vera fyrirliði Evrópu í ár. „Þessir 12 gaurar sem voru í liðinu hjá mér voru allir frábærir, hvort sem það var á golfvellinum eða inn í búningsklefanum, ég gæti ekki verið stoltari af frammistöðunni og að hafa fengið að leiða liðið um helgina.“ Þá segir McGinley að stuðningur áhorfenda hafi hjálpað liði sínu mikið. „Við gerðum þetta fyrir alla golfáhugamenn í Evrópu, það þarf ekki að líta lengra en upp í stúku til þess að sjá gleðina á andlitum fólks. Ryder-bikarinn snýst ekki bara um leikmennina sjálfa heldur að gleðja þetta fólk sem kemur og styður okkur áfram með ástríðu. Það er það sem er svo sérstakt við Ryderinn, það myndast svo mikil stemning hérna að það er engu líkt.“
Mest lesið Rikki G kafnaði aftur í beinni útsendingu Fótbolti Madrídingar sóttu sigur eftir mikil læti í Lissabon Fótbolti Tiger Woods útilokar ekki þátttöku á Masters Sport Vonn hefur ekki staðið upp í meira en viku Sport PSG sneri skelfilegri stöðu í Mónakó Fótbolti Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Enski boltinn Fær meira en milljarð frá kínverska ríkinu Sport Saka verður sá launahæsti Enski boltinn Klopp hringdi bjöllu og hitti hetjuna sína á ÓL Fótbolti Draumabyrjun hjá Dortmund eftir frestun Fótbolti Fleiri fréttir Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira