Ræsing Hamilton var afleidd, hann tapaði 3 sætum á fyrsta hring. Hann kvartaði í talstöðinni yfir að bíllinn skipti ekki úr rásham. Liðinu tókst að endurræsa hugbúnaðinn og Hamilton gat haldið ótrauður áfram.
Valtteri Bottas átti líka slaka ræsingu. Hann ræsti þriðji en varð ellefti eftir ræsinguna. Bottas tók svo til við að vinna upp sætin sem hann hafði tapað. Hann nýtti fyrstu beygjuna mikið til að taka fram úr. Hann endaði í fjórða sæti.
Max Chilton strandaði í mölinni á sjötta hring. Þetta er önnur keppnin á ferlinum sem hann klárar ekki.
„Þetta voru ökumannsmistök, mín sök, ég læsti aðeins dekkjunum og flaug yfir kantinn. Þetta voru eingöngu mín mistök og ég vil biðja liðið afsökunnar,“ sagði Chilton þegar hann kom aftur á þjónustusvæðið.
Hamilton náði öðru sæti af Bottas á tíunda hring. Þá voru tæplega 2,4 sekúndur í Rosberg. Hamilton gat þá hafið eltingarleikinn.
Hamilton náði fyrsta sætinu af Rosberg á hring 28. Rosberg missti af fyrstu beygjunni og þurfti að fara langa leið til að komast aftur inn á brautina. Hamilton hafði nýlega fengið skilaboð um að halda sig vel fyrir aftan Rosberg. Skilaboð sem hann hunsaði með þeim afleiðingum að hann náði forystunni.

Kevin Magnussen á McLaren fékk 5 sekúndna refsingu fyrir að þvinga Bottas út af brautinni í fyrstu beygju.
Daniel Ricciardo fékk að heyra í talstöðinni á 45. hring að „Þú ert talsvert fljótari en Vettel, náum honum.“ Áhugaverð skilaboð sem skiluðu sér. Á 46. hring tók hann fram út ríkjandi fjórföldum heimsmeistara.
„Við erum liðsfélagar og vinir, verðum alltaf vinir, sagði Hamilton aðspurður hvernig samband hans og Rosberg er.
„Því miður gekk þetta ekki upp í dag. Lewis keyrði mjög vel og á þetta skilið,“ sagði Rosberg sem virtist ögn bældur á verðlaunapallinum.
„Ég er ánægður með fyrsta verðlaunasætið á tímabilinu. Það er meira á leiðinni frá mér,“ sagði Massa sem var hæst ánægður með afrakstur dagsins.

1.Lewis Hamilton - Mercedes - 25 stig
2.Nico Rosberg - Mercedes - 18 stig
3.Felipe Massa - Williams - 15 stig
4.Valtteri Bottas - Williams - 12 stig
5.Daniel Ricciardo - Red Bull - 10 stig
6.Sebastian Vettel - Red Bull - 8 stig
7.Sergio Perez - Force India - 6 stig
8.Jenson Button - McLaren - 4 stig
9.Kimi Raikkonen - Ferrari - 2 stig
10.Kevin Magnussen - McLaren - 1 stig
11.Daniil Kvyat - Toro Rosso
12.Nico Hulkenberg - Force India
13.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso
14.Pastor Maldonado - Lotus
15.Adrian Sutil - Sauber
16.Romain Grosjean - Lotus
17.Kamui Kobayashi - Caterham
18.Jules Bianchi - Marussia
19.Esteban Gutierrez - Sauber
20. Marcus Ericsson - Caterham
Fernando Alonso - Ferrari - kláraði ekki
Max Chilton - Marussia - kláraði ekki
Bilið á milli Hamilton og Rosberg í baráttunni um heimsmeistaratitilinn er nú 22 stig. Spennan eykst þegar keppnunum fækkar.