Grosjean: Lotusbíllinn verður betri á næsta ári

Eftir að hafa átt góðu gengi að fagna árið 2013 hefur það sem af er 2014 verið afleitt. Grosjean hefur gert liðinu ljóst að hann vilji bíl sem getur keppt um fyrsta sæti. Líklegt þykir að Lotus skipti yfir í Mercedes vélar fyrir næsta tímabil en Renault vélin hefur valdið gríðarlegum vandræðum í ár.
„Ég er 99,99% viss um að liðið geri betur á næsta ári, svo ég minnist ekki á vélina. Þetta hefur verið erfitt tímabil þar sem við byrjuðum illa og reyndum að byggja ofan á lélegan bíl en á næsta ári horfir til betri vegar. Hvort sem við skiptum um vélaframleiðanda eða ekki,“ sagði franski ökumaðurinn.
„Stundum er þetta erfitt því ég hef mikið keppnisskap og vil vinna keppnir, berjast í fremstu röð og ég vil að hlutirnir gangi betur. Stundum ganga þeir ekki sem skyldi en þá tekur maður því og rembist áfram,“ hélt Grosjean áfram.
Grosjean gaf það út fyrir sumarfrí að hann hugðist velta því fyrir sér hvar hann vill aka á næsta ári. Hugsanlega er hann með einhver tilboð á borðinu og gæti því mögulega verið á förum frá Lotus. Sérstaklega gæti hann verið að hugsa sér til hreyfings ef hann sér ekki fram á að bíllinn verði samkeppnishæfur á næsta tímabili.
„Ég held að þetta lúri alltaf í kollinum á manni. Ég vil fara að vinna keppnir fljótlega og við erum að vinna í því. Auðvitað hugsa ég um framtíðina… ég mun gera það í sumarfríinu,“ sagði Romain Grosjean.
Tengdar fréttir

Albers: Ökumenn verða að standa sig til að halda sætinu
Christijan Albers liðsstjóri Caterham liðsins segir að ökumenn liðsins verði að standa sig ef þeir ætla sér að klára tímabilið með liðinu.

Alonso: Ekkert öðruvísi að vinna með Kimi
Fernando Alonso segir að það sé ekkert öðruvísi að vinna með Kimi Raikkonen en öðrum liðsfélögum sem hann hefur haft í gegnum tíðina.

Pirelli hefur ekkert á móti fleiri keppnum
Ítalski dekkjaframleiðandinn Pirelli sem sér Formúlu 1 liðum fyrir dekkjum segist ekki hafa neitt á móti lengra tímabili með fleiri keppnum.

Williams vill fara að vinna keppnir
Frammistöðustjóri Williams liðsins, Rob Smedley segir að liðið eigi að stefna á að vinna í næstu tvem keppnum.

Mikil vinna framundan hjá Ferrari
Marco Mattiacci, liðsstjóri Ferrari segir að liðsins bíði mikil vinna. Liðið ætli sér aftur á toppinn en muni þurfa að hafa fyrir því.

Bílskúrinn: Keppnin sem hafði allt
Ungverski kappaksturinn var viðburðaríkur og spennandi. Hann hafði eiginleg allt sem góður kappakstur getur haft fram að færa. Það afdrifaríkasta og afbrigðilegasta sem gerðist verður skoðað í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Bottas: Williams verður áfram í baráttunni 2015
Valtteri Bottas, ökumaður Williams liðsins í Formúlu 1 segist sannfærður um að góður árangur liðsins að undanförnu muni halda áfram á næsta ári.