Itay Adam, ísraelskur frumkvöðull, hefur safnað yfir tveimur milljónum dollara frá fjárfestum án þess að hafa hugmynd hvaða vöru hann ætli að búa til. Forbes greinir frá.
Adam er mikill aðdáandi Seinfeld sjónvarpsþáttanna en Larry David og Jerry Seinfeld, höfundar þáttanna, seldu sjónvarpsstöðinni NBC þættina með því að leiðarljósi að þetta væru „þættir um ekkert.“ Adam ákvað því að fylgja í fótspor þeirra og seldi fjárfestum þá hugmynd að fyrirtækið hans hefði enga vöru til að selja.
Adam útbjó fjörutíu mínútna langa glærusýningu sem innihélt einungis fimm glærur sem á voru átján brandar en ekki orði minnst á neina vöru. Á fyrstu glærunni var vitnað beint í Seinfeld þar sem stóð einfaldlega „this is a show about nothing” eða „þetta er þáttur um ekki neitt.“
Adam sem unnið hefur við markaðsmál og markaðssett yfir eitt þúsund vöru réð sér handritshöfund til að aðstoða sig við að búa til kynninguna sem hann leit á eins og fjörtíu mínútna uppistand. Hugmyndin sló heldur betur í gegn því á örfáum dögum safnaði Adam yfir tveimur milljónum dollara eða um 250 milljónum íslenskum króna.
Það veit enginn hvað mun slá næst í gegn
„Það veit enginn hvað mun slá í gegn næst, það eru bara uppi getgátur. Markmið mitt er að búa til fimm til sex manna teymi af reynslumiklu fólki sem hefur sannað sig, allt eldra en 35 ára, til að skapa það sem slær næst í gegn, hvað sem það kann að vera,“ segir Adam.
Ísraelski markaðsmaðurinn segist frekar vilja ráða eldri starfsmenn sem séu að nálgast miðjan aldur. Þeir geti komið meira í verk á átta tíma vinnudegi en tvítugur starfsmaður getur á heilli viku.
Adam ráðleggur öðrum frumkvöðlum að hafa skemmtanagildið að leiðarljósi þegar þeir markaðsseti sínar vörur eða hugmyndir.
Frumkvöðull safnar milljónum í anda Seinfeld
ingvar haraldsson skrifar

Mest lesið

Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin
Viðskipti erlent


Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina
Neytendur


Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað
Viðskipti erlent

Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er
Viðskipti erlent

Að segja upp án þess að brenna brýr
Atvinnulíf

„Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“
Viðskipti innlent

Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni
Viðskipti innlent

Bretar fyrstir til að semja við Trump
Viðskipti erlent