Flugritar MH17 afhentir malasískum sérfræðingum Jakob Bjarnar skrifar 22. júlí 2014 06:54 Öryggisráðið samþykkti samhljóða að leggja fram kröfu þess efnis að alþjóðlegir aðilar fengju aðgang að slysstað. ap
Uppreisnarmenn í austur Úkraínu hafa nú afhent flugrita vélarinnar MH17 til malasískra sérfræðinga. Það gerði einn af foringjum upreisnarmanna á fundi í Donetsk með malasískum yfirvöldum. Þetta var klukkustund eftir að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða að leggja fram kröfu þess efnis að alþjóðlegir aðilar fengju aðgang að slysstað, en flugvélin hrapaði til jarðar á fimmtudag og fórust allir sem um borð voru eða 298 manns. Fulltrúar vestrænna ríkja, þeirra á meðal John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafa haldið því fram að ýmislegt bendi til þess að rússneskt flugskeyti, sem uppreisnaröflin höfðu í fórum sínum, hafi grandað vélinni en Rússar hafa á móti haldið því fram að úkraínsk yfirvöld beri ábyrgð á voðaverkinu. Talið er víst að í dag verði lögð fram krafa um frekari aðgerðir gegn Rússum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, sem þá snýr að ásökunum þess efnis að þeir styðji uppreisnaröfl í Úkraínu. Fram hefur komið sú krafa, bæði á vettvangi Evrópusambandsins, sem og í Bandaríkjunum, að farið verði út í víðtækar viðskiptaþvinganir á hendur Rússum, vegna ástandsins á Krímskaga.
MH17 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira