Svipað er uppá teningnum fyrir norðan en ekki hefur orðið vart við mikið af smálaxi, það hefur þó ekki komið að sök því uppistaðan í aflanum er vænn tveggja ára lax. Það stefnir kannski ekki í neitt metár en flestar árnar á Norðurlandi eru bara í fínum málum og ekkert óalgengt að sjá fyrstu stóru smálaxagöngurar í árnar á fyrsta stóra júlístraum en á vesturlandi eiga þær í það minnsta að vera farnar að mæta að einhverju ráði. Það er ennþá von í að þessar göngur mæti næstu daga og það eru alveg fordæmi fyrir því á þessari öld að þær komi seint. Það er ótrúlegt að sjá að ár eins og Grímsá, Laxá í Kjós, Leirvogsá og Langá ekki komnar yfir 100 laxa en þar hefur bara alveg vantað allar stórar göngur. Á meðan árnar í kring eins og Haffjarðará, Norðurá, Þverá, Hítará og Flókadalsá eru að skila svipaðri veiði og reikna mætti með á meðalgóðu ári en mismikið þó. Hvað veldur er erfitt að segja en næstu 7 dagar koma líklega til með að skera úr um það hvort hér sé annað árið á stuttum tíma sem stórar smálaxagöngur láta sig alveg vanta.
Hér er topp tíu listinn frá Landssambandi Veiðifélaga en listann allann má finna á www.angling.is
Veiðivatn | Dagsetning | Heildarveiði | Stangafjöldi | Lokatölur 2013 |
Blanda | 9. 7. 2014 | 615 | 14 | 2611 |
Þverá + Kjarará | 9. 7. 2014 | 334 | 14 | 3373 |
Norðurá | 9. 7. 2014 | 329 | 15 | 3351 |
Miðfjarðará | 9. 7. 2014 | 203 | 10 | 3667 |
Haffjarðará | 9. 7. 2014 | 197 | 6 | 2158 |
Eystri-Rangá | 9. 7. 2014 | 160 | 20 | 4797 |
Laxá í Aðaldal | 9. 7. 2014 | 131 | 18 | 1009 |
Vatnsdalsá í Húnaþingi | 9. 7. 2014 | 125 | 6 | 1116 |
Laxá á Ásum | 9. 7. 2014 | 95 | 2 | 1062 |
Selá í Vopnafirði | 9. 7. 2014 | 78 | 7 | 1664 |