Nýjar veiðitölur komu inná síðu Landsambands Veiðifélaga í gær og sýnir að staðan er nú ekki eins slæm og margir hafa haldið fram og óttast. Það sem hefur haft gífurlega mikil neikvæð áhrif á veiðitölur er veðrið, sérstaklega á suður- og vesturlandi, en miklar rigningar og hvassviðri hafa gert árnar óveiðandi suma dagana og þá hækka tölurnar lítið ef engin er við ánna að veiða. Inn á milli kemur þó skaplegt veður og þá er veiðin nokkurn veginn í takt við gott eða meðalgott ár. Þegar veiðitölur í samanburðaránum er skoðaðar eru árnar flestar á pari eða aðeins undir meðalveiði og það þrátt fyrir að stóru smálaxagöngurnar eru ekki ennþá komnar í árnar, í það minnsta ekki í þær allar. Við ósa Langár sem dæmi hefur stór laxatorfa sést dóla inn á hverju flóði en ekki gengið upp í ánna og það á sér ósköp eðlilegar skýringar. Þegar áin er bólgin og vatnsmikil sökum rigninga bíður laxinn með að fara í hana en um leið og hún sjatnar drífur laxinn sig upp á þá er oft mikið líf við bakkann. En annars lítur topp 10 listinn svona út í gærkvöldi:
Blanda | 2. 7. 2014 | 350 | 14 | 2611 |
Þverá + Kjarará | 2. 7. 2014 | 231 | 14 | 3373 |
Norðurá | 2. 7. 2014 | 195 | 15 | 3351 |
Miðfjarðará | 2. 7. 2014 | 124 | 10 | 3667 |
Haffjarðará | 2. 7. 2014 | 108 | 6 | 2158 |
Vatnsdalsá í Húnaþingi | 2. 7. 2014 | 83 | 7 | 1116 |
Laxá í Aðaldal | 2. 7. 2014 | 65 | 18 | 1009 |
Elliðaárnar. | 2. 7. 2014 | 58 | 6 | 1145 |
Víðidalsá | 2. 7. 2014 | 45 | 8 | 909 |
Eystri-Rangá | 2. 7. 2014 | 42 | 18 | 479 |