Rosberg á ráspól á Silverstone Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 5. júlí 2014 13:06 Rosberg náði ráspól í dag í bleytunni. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í breska kappakstrinum, Sebastian Vettel á Red Bull varð annar og Jenson Button á McLaren varð þriðji. Tímatakan einkenndist af skúrum á köflum og miklum sviftingum. Fyrsta lota tímatökunnar hófst i rigningu. Allir ökumenn völdu milliregndekk. Þegar líða fór á lotuna reyndu einhverjir að fara út á dekkjum fyrir þurra braut. Þau dekk virtust virka betur, Max Chilton á Marussia var skyndilega orðinn annar fljótastur úr 20. sæti. Gulum flöggum var veifaði víða um brautina undir lok lotunnar þegar margir á sléttum þurr dekkjum snérust í beygjum. Ferrari og Williams liðin sátu eftir sem er afar óvenjulegt í fyrstu lotu. Þeim fylgdi Caterham liðið, sem oftar situr eftir í fyrstu lotu.Valtteri Bottas og Felipe Massa á Williams, Fernando Alonso og Kimi Raikkonen á Ferrari og Marcus Ericsson og Kamui Kobayashi á Caterham, sátu eftir í fyrstu lotu. Það rigndi í upphafi annarrar lotu svo milliregndekk aftur fyrir valinu hjá öllum ökumönnum. Rigningin hætti og brautin þornaði ört. Ökumenn skiptu þá á sléttu þurr dekkin. Marussia ökumennirnir voru aftur komnir óvenju ofarlega í töflunni undir lok lotunnar í 5. og 6. sæti. Gulum flöggum var veifað þegar Esteban Gutierrez fór útaf brautinni og lenti á varnarvegg. Þeir sem sátu eftir í annarri lotu voru Romain Grosjean og Pastor Maldonado á Lotus, Jules Bianchi og Max Chilton á Marussia og Sauber mennirnir Esteban Gutierrez og Adrian Sutil. Þriðja lotan hófst í þurru og svo hóf að rigna. Margir ökumenn lentu í vandræðum í Stowe beygjunni, þar sem rigningin hófst. Mikill erill myndaðist á þjónustusvæðinu.„Mín mistök,“ sagði Lewis Hamilton einfaldlega. eftir að hafa komið inn á þjónustusvæði á síðasta tímatökuhring sínum. Hann hefði hugsanlega getað náð ofar en sjötta sæti á ráslínu. „Ég veit að þetta er bara þriðja sætið í tímatöku en þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir liðið og mig því síðaustu 18 mánuðir hafa verið gríðarlega erfiðir. Mjög gott að ná þessu á heimaveilli,“ sagði Jenson Button eftir tímatökuna. Áhorfendur munu margir klæðast bleiku á morgun til að mynnast John Button föður Jenson Button sem lést fyrr á þessu ári. Hann var vanur að klæðast bleikri skyrtu á keppnisdögum. „Það mun væntanlega taka hann (Hamilton) tíma til að berjast í gegnum þvöguna en ég geri alveg ráð fyrir því að hann geri það. Hann mun ekkert gefa mér neitt á morgun,“ sagði Rosberg eftir tímatökuna. Ferrari átti ekki góðan dag, Alonso og Raikkonen sátu báðir eftir í fyrstu lotu.Vísir/GettyNiðurstaða tímatökunnar varð: 1.Nico Rosberg - Mercedes 2.Sebastian Vettel - Red Bull 3.Jenson Button - McLaren 4.Nico Hulkenberg - Force India 5.Kevin Magnussen - McLaren 6.Lewis Hamilton - Mercedes 7.Sergio Perez - Force India 8.Daniel Ricciardo - Red Bull 9.Daniil Kvyat - Toro Rosso 10.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso 11.Romain Grosjean - Lotus 12.Jules Bianchi - Marussia 13.Max Cilton - Marussia 14.Esteban Gutierrez - Sauber 15.Pastor Maldonado - Lotus 16.Adrian Sutil - Sauber 17.Valtteri Bottas - Williams 18.Felipe Massa - Williams 19.Fernando Alonso - Ferrari 20.Kimi Raikkonen - Ferrari 21.Marcus Ericsson - Caterham 22.Kamui Kobayashi - Caterham
Formúla Tengdar fréttir Hamilton sækir innblástur til Muhammads Ali Barátta Mercedes-ökuþóranna mikil fyrir breska kappaksturinn á Silverstone um helgina. 4. júlí 2014 15:45 Lauda: Hamilton er andlega reiðubúinn að berjast Niki Lauda, sérstakur ráðunautur Mercedes liðsins og fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 telur að Lewis Hamilton berjist af hörku í komandi keppnum. 28. júní 2014 21:00 Mercedesmenn fljótastir á föstudagsæfingum Nico Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Silverstone brautinni á tímanum 1:35,424. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð fljótastur á seinni æfingunni á tímanum 1:34,508. 4. júlí 2014 18:42 Red Bull bíllinn betri en Renault vélin Daniel Ricciardo ökumaður Red Bull telur að bilið á milli Renault og Mercedes vélanna sé sóun á getu Red Bull bílsins. 2. júlí 2014 06:00 Mest lesið Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Enski boltinn „Þessi Kane er stórhættulegur“ Körfubolti Liverpool - Tottenham | Takast á við lið í nauð Enski boltinn Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari Sport Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ Körfubolti Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Enski boltinn Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Enski boltinn Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ítalinn ungi sótti sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Russell sakar Ferrari um eigingirni Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Verstappen tikkar af golulistanum Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira
Hamilton sækir innblástur til Muhammads Ali Barátta Mercedes-ökuþóranna mikil fyrir breska kappaksturinn á Silverstone um helgina. 4. júlí 2014 15:45
Lauda: Hamilton er andlega reiðubúinn að berjast Niki Lauda, sérstakur ráðunautur Mercedes liðsins og fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 telur að Lewis Hamilton berjist af hörku í komandi keppnum. 28. júní 2014 21:00
Mercedesmenn fljótastir á föstudagsæfingum Nico Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Silverstone brautinni á tímanum 1:35,424. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð fljótastur á seinni æfingunni á tímanum 1:34,508. 4. júlí 2014 18:42
Red Bull bíllinn betri en Renault vélin Daniel Ricciardo ökumaður Red Bull telur að bilið á milli Renault og Mercedes vélanna sé sóun á getu Red Bull bílsins. 2. júlí 2014 06:00