Fengu 28 urriða á rúmlega tveimur tímum í Veiðivötnum Karl Lúðvíksson skrifar 30. júní 2014 20:06 Eyjólfur með 10 punda urriða úr Hraunsvötnum sem er stærsti fiskurinn veiddur í Veiðivötnum í sumar Mynd: Bryndís Magnúsdóttir
Veiðin í Veiðivötnum fór rólega af stað fyrstu dagana en er greinilega að komast í fullann gang miðað við þær fréttir sem berast ofan úr vötnunum eftir helgina. Það má líka sjá á samanburðartölum að veiðin núna er betri en árin 2012 og 2013 sem þóttu heldur rýr í vötnunum og það er mikið gleðiefni fyrir þá sem eiga daga á næstunni og vita sem er að þegar veiðin er góð í Veiðivötnum er fátt sem toppar það. Mikið hefur veiðst bæði af bleikju og urriða en þess má geta að stærsti fiskurinn er 10.6 punda urriði sem veiddist í Hraunsvötnum en það er að verða árlegur viðburður að sjá stærstu fiskana úr þeim. Við fengum fréttir af einum veiðimanni, sem er starfsmaður í veiðibúð í Reykjavík og þekkir vötnin afskaplega vel, sem gerði frábæra veiði í gærkvöldi þegar hann ásamt félaga sínum landaði 28 flottum urriðum og misstu annað eins á rétt rúmum tveimur tímum. Því miður fylgir það ekki fréttinni í hvaða vatni þetta veiddist og verða engar getgátur settar fram um slíkt, en þetta er það sem má kalla frábæra veiði. Þeir sem eiga eftir að tryggja sér viðileyfi geta kíkt á síðu veiðivatna www.veidivotn.is en þar eru laus leyfi og þau leyfi sem detta út auglýst.
Stangveiði Mest lesið Frá 25 til 60 prósenta afsláttur á veiðileyfum Veiði Frábær veiði á stöng í Jöklu 2011 Veiði Er þetta flottasta veiðimyndin í sumar? Veiði Síðasta rjúpnahelgin framundan Veiði Stórurriði sleit sig lausann við Elliðavatn í gærkvöldi Veiði Áframhald á kuldatíð seinkar veiðivon á norðurlandi Veiði Fimmta tölublað Veiðislóðar komið út Veiði Jöfn veiði í Norðurá og Blöndu Veiði 75 ára afmæli SVFR Veiði Lifnar yfir Ásgarði í Soginu Veiði