Sigmundur og Bjarni þiggja boð um að opna Norðurá Stefán Árni Pálsson skrifar 3. júní 2014 16:23 Sigmundur og Bjarni verða í Norðurá á fimmtudagsmorgun.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, verða meðal þeirra sem opna Norðurá á fimmtudagsmorgun en þetta kemur fram á vefsíðunni Vötn og veiði. Einar Sigfússon, sölustjóri Norðurár, segir í samtali við vefsíðuna það til fyrirmyndar að þeir skyldu þiggja boðið. Það væri liður í því að breyta til batnaðar ímyndarvanda sem laxveiði á Íslandi hefði átt í eftir hrun. Einar segir ennfremur í samtali við Vatn og veiði að veiðileyfasalar hefðu þurft að kljást við ímyndarvanda eftir hrunið, greinin hefði verið komin með ímynd bruðls og óhófs og það væri miður því hér væri um eina merkustu auðlind sem Ísland hefði upp á að bjóða. Einar vill stuðla að því að breyta þessari neikvæðu ímynd og liður í því væri að bjóða umræddum forystumönnum þjóðarinnar. „Mér finnst það vera til fyrirmyndar að þeir Sigmundur og Bjarni skuli taka undir þessa skoðun og þiggja þetta boð, að það sé sómi að því að geta boðið og að þiggja. Það er í þágu allra sem að þessu koma að ímyndin færist á ný til betri vegar,“ segir Einar í samtali við Vötn og veiði.
Mest lesið Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Erlent „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Innlent Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Innlent „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Innlent „Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“ Innlent Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Enginn læknir á vaktinni Innlent Íslandsvinurinn OG Maco látinn Erlent Fleiri fréttir „Mér liggur við að segja að það eigi að fara að afgreina fólk“ Ekki séð stærri hval reka í Víkurfjöru Ólga innan Sjálfstæðisflokksins og maður sem á fimm hundruð derhúfur Holtavörðuheiði og Súðavíkurhlíð lokað „Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“ „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Hvað þarf að ræða í Kryddsíldinni? Enginn læknir á vaktinni „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Flugeldasala Landsbjargar hafin Ósætti með mögulega frestun landsfundar og flugeldasala Hvað vildu Íslendingar vita á árinu? Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Ófært í Ísafjarðardjúpi Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Sakamálin sem skóku þjóðina Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Sjá meira