Alonso og Hamilton fljótastir

Besti tími Alonso á fyrri æfingunni var 1:17.238 aðeins 16 þúsundustu úr sekúndu á undan Hamilton. Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji. Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel varð fjórði.
Lítið var um óvænt atvik á fyrri æfingunni, Jules Bianchi á Marussia rakst þó í vegg og braut fjöðrun.
Besti tími Hamilton á seinni æfingunni var rúmri sekúndu hraðari en tími Alonso frá því fyrr um daginn, 1:16.118. Rosberg varð annar og Vettel þriðji.
Ferrari ökumennirnir komu svo þar á eftir, Kimi Raikkonen á undan Alonso og svo Williams mennirnir Felipe Massa og Valtteri Bottas komu svo þar á eftir.
Bianchi lenti aftur í vandræðum á seinni æfingunni, þá bilaði vélin í bíl hans og hann náði ekk að ljúka sínum þriðja hring á æfingunni.
Tímatakan fyrir kanadíska kappaksturinn fer fram í dag og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 16:50. Keppnin er svo á dagskrá klukkan 17:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.
Tengdar fréttir

Mattiacci: Raikkonen er geysilega svalur gaur
Nýráðinn liðsstjóri Ferrari, Marco Mattiacci finnst Kimi Raikkonen "geysilega svalur gaur“ og nýtur þess að vinna með finnska ökumanninum.

Mercedes á meira inni
Sam Bird, fyrrverandi þróunarökumaður Mercedes liðsins í Formúlu 1, telur að liðið eigi enn eftir að sýna fulla hæfni W05 bílsins.

Ísmaðurinn hefur verið óheppinn
Finninn Kimi Raikkonen sem ekur fyrir Ferrari telur að frammistaða sín í ár hafi verið betri en úrslitin hafi sýnt. Hann telur ólán sitt felast í atvikum sem hann fær ekki stjórnað.

Massa er þakklátur fyrir að hafa verið hafnað af Ferrari
Felipe Massa viðurkennir að hann sé þakklátur fyrir ákvörðun Ferrari að skipta honum út fyrir Kimi Raikkonen. Hann hefur fundið sig vel hjá Williams.

Renault loksins með fullt afl í Kanada
Franski bílaframleiðandinn telur að vélar sínar séu nú lausar við vandamálin sem hrjáðu þær í byrjun tímabilsins.

Bílskúrinn: Hamilton og Rosberg ekki lengur vinir
Mónakó kappaksturinn fór fram í gær og dramatíkin náði nýjum hæðum. Mercedes liðið hefur unnið allar keppnir tímabilsins.