Hörður og hans menn hjá GSÍ kynntu verkefni sumarsins á blaðamannafundi í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag, bæði Eimskipsmótaröðina og Íslandsbankamótaröð unglinga. Fyrsta mótið, Nettó-mótið, fer fram strax um helgina á Hólmsvelli í Leiru og er full skráning þrátt fyrir að byrjað sé fyrr en vanalega.
Íslandsmótið í höggleik fer fram í fyrsta skipti á Leirdalsvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Klúbburinn fagnar 20 ára afmæli sínu á árinu og heldur upp á það með því að hýsa stærsta mót ársins.

Símamótið, þriðja mót ársins á Eimskipsmótaröðinni, fer fram á Hamarsvelli í Borgarnesi en þetta er í fyrsta skipti sem leikið er þar á mótaröðinni. Í heildina eru öll fimm mótin á mótaröðinni, að undanskildum Íslandsmótunum tveimur, haldin fyrir utan höfuðborgarsvæðið.
„Ástæðan er fyrst og fremst að álagið er mikið á völlunum á höfuðborgarsvæðinu og við erum að nýta vellina á jaðarsvæðunum. Þetta eru frábærir vellir sem við eigum út um allt land og það er samkomulag í hreyfingunni um að nýta þá í mótahaldið,“ segir Hörður við Vísi.
Veturinn fór illa með marga golf- og knattspyrnuvelli og koma þeir misvel undan vetri. En hvernig er standið á þeim völlum sem spilað verður á í sumar?
„Þeir eru ekkert allir í 100 prósent standi en þeir standa betur en á horfði. Menn fóru í mikla vinnu í vor, eða frá febrúar, að brjóta klaka og vinna teiga og flatir. Það tókst, en aftur á móti eru skemmdir á brautum eftir þennan erfiða vetur.“

„Við erum í sjálfu sér bara að auka framboð á mótum fyrir okkar bestu kylfinga og sjá hvort það skilar sér fyrir þá. Vandamálið sem við búum við er, að tugir okkar bestu kylfinga eru í Háskólum í Bandaríkjunum þannig þeir fara snemma á haustin. En við reynum eins og við getum að teygja sumarið eins og við getum og þetta er hluti af því.
Mótin á Eimskipsmótaröðinni:
1. Nettó-mótið, 25.-26. maí á Hólmsvelli í Leiru.
2. Egils Gull-mótið, 30.maí-1. júní á Strandavelli á Hellu
3. Símamótið, 13.-15. júní á Hamarsvelli í Borgarnesi
4. Securitas-mótið (Íslandsmótið í holukeppni), 27.-29. júní á Hvaleyrarvelli í Hafnafirði
5. Eimskipsmótið (Íslandsmótið í höggleik), 24.-27. júlí á Leirdalsvelli í Garðabæ
6. Mót á Garðavelli á Akranesi 15.-17. ágúst
7. Goða-mótið, 30.-31. ágúst á Jaðarsvelli á Akureyri