Hornafjörður hefur risið um 15 sentímetra frá 1997 Svavar Hávarðsson skrifar 3. apríl 2014 10:26 Grímsvatnagos 2011. Grímsvötn undir Vatnajökli eru virkasta eldstöð landsins og hafa að öllum líkindum gosið oftar en hundrað sinnum frá landnámi og 13 sinnum frá aldamótum 1900. Fréttablaðið/Egill
Höfn í Hornafirði stendur nú 15 sentímetrum hærra en bærinn gerði árið 1997, en ástæðan er minna farg af bráðnandi jökulþekju. Súrnun sjávar mun taka yfir sem helsta rannsóknar- og áhyggjuefni manna vegna hlýnunar jarðar af völdum loftslagsbreytinga. Þetta kom fram í máli Halldórs Björnssonar, verkefnisstjóra loftslagsrannsókna, á ársfundi Veðurstofu Íslands sem haldinn var á dögunum. Hann sagði að þegar væri súrnun sjávar tekin að hafa áhrif á efnahag í einstökum ríkjum og hún væri verulegt áhyggjuefni. Halldór reifaði helstu breytingar sem hér verða ef spár ganga eftir. Jöklar munu hopa enn frekar, og eftir öld eða tvær munu aðeins finnast hér fjallajöklar. Afrennsli jökuláa mun því breytast mikið og tækifæri til raforkuvinnslu aukast um 20% um tíma, ef raforkukerfi verða hönnuð til þess að nýta það vatn sem til fellur. Landið mun grænka með hlýnun; skógarmörk færast ofar og sjálfsprottnir skógar verða algengari. Afrakstur ræktarlands verður meiri. Samsetning flökkustofna fugla og fiska mun breytast hér á landi; fuglar leita til landsins á meðan aðrir víkja sem kjósa kaldara loftslag. Gengd síldar, loðnu og makríls eru þekkt dæmi og breytingar halda áfram. Aðrar breytingar eru hins vegar óvæntari og ekki eins vel kynntar. Höfn í Hornafirði stendur til dæmis 15 sentímetrum hærra en bærinn gerði árið 1997. „Það sem gerist þegar jöklar hopa og þynnast er að þá lyftist jarðskorpan þegar fargið minnkar. […] Suðausturströndin er að lyftast mjög mikið,“ sagði Halldór sem sýndi gögn þar sem sést að jörð rís á svæðinu um 0,8 til 1,4 sentímetra á ári vegna bráðnunarinnar og verður það rakið beint til Vatnajökuls. Halldór vék að því að losun koltvísýrings mun vera um tíu gígatonn á ári, en árið 1990, þegar hinn frægi Kyoto-sáttmáli var undirritaður, var losunin um sex gígatonn. Iðnríkin hafa að mestu staðið við það að auka ekki losun, en aukningin kemur mest öll frá þróunarríkjum og þá vegna kolabruna. Í Kína, ekki síst, eru byggð kolaraforkuver í stórum stíl, og losun frá kolabruna vex um 2,8% á ári um þessar mundir. Notkun og tækninýjungar við vinnslu jarðgass hafa haft þau áhrif að kolabruni iðnríkja dregst saman.Bráðnun jökla eykur eldvirkni Íslenskir jarðvísindamenn hafa um langt skeið rannsakað og birt niðurstöður sínar um bráðnun jökla – og þá ekki síst varðandi Vatnajökul. Niðurstöður þeirra sýna: Vatnajökull er 8.000 ferkílómetrar að flatarmáli og að meðaltali um 400 metra þykkur. Rúmmál hans er ríflega 3.000 rúmkílómetrar og þyngdin rúmlega 3.000 milljarðar tonna. Áætlað er að þegar jökullinn hefur hopað allur muni land undir honum miðjum rísa um rúma 100 metra, en allt að 20 metra við Höfn í Hornafirði. Fargléttirinn við bráðnun jökulsins mun stórauka eldvirkni enda á þá kvikan greiðari leið upp á yfirborðið.
Loftslagsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira