Keppnin einkenndist af baráttu liðsfélaga. Mercedes menn börðust innbyrðis til loka. Fleiri liðsfélagar sem börðust í gegnum keppnina voru Force India menn, Williams menn og Ferrari menn.
Við förum yfir málin í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Sex af þeim 10 bílum sem náðu í stig í kappakstrinum nota Mercedes vélar. Þær hafa greinilega meiri hraða. Það sást best á löngu beinu köflum brautarinnar í Bahrain. Hvorki Renault vélarnar né Ferrari vélarnar höfðu afl til að halda í við bíla með Mercedes vélar.
Ferrari ökumaðurinn Fernando Alonso talaði um það eftir keppnina að brautir eins og þessar væru ekki hentugar fyrir Ferrari vélina.

Pastor Maldonado fær sinn eigin kafla í Bílskúrnum í dag. Skapbráði Venesúela maðurinn hjá Lotus fór mikinn. Hann ók á Jean-Eric Vergne á fyrsta hring og sprengdi dekk á Toro Rosso bíl Vergne.
Hann hlaut svo refsingu fyrir að velta bíl Esteban Guterrez. Maldonado ætlaði þá að ná innri aksturslínunni í gegnum fyrstu beygju. Hann var að koma af þjónustusvæðinu, Gutierrez var á eðlilegri aksturslínu þegar Maldonado keyrir inní hlið Sauber bílsins. Bíllinn valt en Gutierrez slapp ómeiddur. Maldonado verður færður aftur um fimm sæti á ráslínu í næstu keppni. Einnig fékk hann þrjá punkta á leyfið sitt.

Með baráttu liðsfélaga um alla braut var áhugavert að heyra hvernig liðin reyndu að passa að enginn óhöpp yrðu. Tæknistjóri Mercedes, Paddy Lowe sagði við sína menn „verið vissir um að koma báðum bílum til loka.“ Annars fengu þeir að keppa sín á milli að vild.
Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel fékk skilaboð um að hleypa nýja liðsfélaga sínum, Daniel Ricciardo fram úr. Vettel gerði það án þess að mótmæla.
Williams gaf ekki út neinar liðskipanir í keppninni. Liðið hafði í síðustu viku beðið ökumenn sína afsökunnar á að hafa notað liðskipanir í síðustu keppni.
Ferrari menn fengu að keppa sín á milli án afskipta liðsins.

Báðir bílar McLaren hættu keppni, með stuttu millibili. Kevin Magnussen hætti um það leyti sem öryggisbíllinn kom út og Jenson Button hætti skömmu eftir að öryggisbíllinn kom inn.
McLaren gaf svo út að kúplingin hefði bilað í báðum bílunum. Það er því áhyggjuefni fyrir þá uppá framhaldið hversu lengi kúplingin endist.

Þegar að öryggisbíllinn kom út vegna veltu Gutierrez, var Hamilton með nægt forskot á Rosberg. Svo þegar öryggisbíllinn fór inn aftur eftir að búið var að hreinsa brautina hafði hópurinn þjappast saman. Rosberg var alveg við Hamilton.
Hamilton varð að notast við harðari dekkin en Rosberg hafði þegar notað þau og var því á mýkri gerðinni, sem var hraðskreiðari.
Þegar keppnin hófst að nýju voru 11 hringir eftir og allir í einni halarófu, spennan var því gríðarleg. Þá kom í ljós hversu mikla yfirburði Mercedes bílarnir hafa. Þeir voru í innbyrðis keppni og þurftu ekki að spara eldsneyti. Þegar keppninni lauk munaði einni sekúndu á milli þeirra en Perez í þriðja sæti var 23,9 sekúndum á eftir Hamilton.