Skora á Alþingi að virða niðurstöðuna á Krímskaga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. mars 2014 15:09 Vísir/Pjetur
Á vefsíðunni Austurvöllur.is geta landsmenn skorað á Alþingi að virða lýðræðislega niðurstöðu kosninganna á Krímskaga. Ástþór Magnússon stendur fyrir undirskriftasöfnuninni. Ástþór segir viðbrögð Bandaríkjamanna og fleiri vegna ástandsins á Krímskaga minna um margt á viðbrögð sömu aðila þegar ákveðið var að hefja innrás í Írak. „Þetta gæti orðið kveikjan að þriðju heimsstyrjöldinni,“ segir Ástþór. Mikilvægt sé að virða niðurstöðu lýðræðislegra kosninga þar sem afgerandi meirihluti hafi kosið með því að Krímskagi sameinist Rússlandi. Þátttaka í kosningunum hafi auk þess verið afar góð. „Pútín ætti að vera tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels fyrir að efna til kosninganna,“ segir Ástþór sem óttast viðbrögð Bandaríkjamanna. „Rússar eru að höndla þetta mjög diplómatískt. Það eru glæpamenn komnir til valda í Kænugarði. Þeir komust ekki til valda með kosningum heldur uppreisn,“ segir Ástþór. Því megi líkja við að Íslendingar á Austurvelli tækju völdin hreinlega af ríkisstjórninni. „Þannig virkar þetta ekki.“
Úkraína Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira