Íþróttafólk UNC háskólans var aldrei í námi Finnur Thorlacius skrifar 5. mars 2014 15:34 Körfuboltalið kljást í háskóladeildinni í Bandaríkjunum. Businessweek
Heilmikill skandall hefur komið uppá yfirborðið hvað varðar nám þeirra bestu íþróttamanna sem bandarísku háskólarnir laða til sín. Kona ein sem starfaði við íþróttadeildina í UNC (University of North carolina) hefur stigið fram sem vitni með þeim loforðum að hún sjálf verði ekki sótt til saka fyrir að hafa sjálf tekið þátt í þessu hneyksli. Hún hætti störfum þar árið 2009. Business Week greinir frá. Svo virðist sem einir 200 bekkir UNC háskóla og ef til vill fleiri skóla þar vestra hafi í raun aldrei verið til og að íþróttamennirnir, sem þá áttu að hafa sótt, hafi aldrei gert það heldur einbeitt sér eingöngu að íþrótt sinni. Þó hafi þeir útskrifast úr námi. Konan ætlar að greina frá því hverjir það voru sem stóðu að þessu háttalagi og eru örugglega margir hræddir um stöðu sína nú. Ásakanir hafa reyndar verið uppi í ein þrjú ár um að þetta hafi einmitt verið staðreyndin en enginn hefur enn stigið fram til að staðfesta það fyrr en nú. Íþróttastarf háskólanna veltir um 1.800 milljörðum á ári og mikil samkeppni ríkir milli þeirra um árangur í íþróttum. Stóra spurningin er hvort ekki fari nú í gang stór rannsókn hjá öllum háskólunum vestra svo fletta megi af misgjörðum þeirra sem þetta stunduðu.
Mest lesið Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Viðskipti innlent „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Viðskipti innlent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum Viðskipti innlent Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent