Handbolti

Metnaður Kolding er að vinna titla

Aron Kristjánsson tekst á við spennandi verkefni.
Aron Kristjánsson tekst á við spennandi verkefni. Vísir/Daníel
Yfirmaður íþróttamála hjá KIF Kolding er ánægður með að Aron Kristjánsson hafi tekið boði félagsins um að stýra liðinu út tímabilið.

Landsliðsþjálfarinn fékk leyfi frá HSÍ til að þjálfa stórlið Kolding út tímabilið vegna veikinda núverandi þjálfara liðsins.

Kolding er gífurlega vel mannað lið, stútfullt af núverandi og fyrrverandi dönskum landsliðsmönnum á borð við Bo Spelleberg, Lasse Boesen, Joachim Boldsen og Kasper Hvidt. Þá er sænska stórskyttan Kim Andersson á mála hjá liðinu.

Liðið er búið að finna fimm leiki af átta í B-riðli Meistaradeildar Evrópu og er á góðri leið með að komast í 16 liða úrslitin. Það veitti Þýskalandsmeisturum Kiel harða samkeppni á dögunum en þurfti á endanum að lúta í gras.

Kolding var talið öruggur sigurvegari í dönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en tapaði nokkuð óvænt í úrslitaviðureigninni fyrir Álaborg. Stefnan er að gera betur í ár og er Aroni gert að skila meistaratitli þó hann sé aðeins hjá liðinu til bráðabirgðar.

„Metnaður okkar er að vinna og við erum með liðið til þess. Það sáum við á sunnudaginn þegar við gátum sett Kiel undir pressu þrátt fyrir að vera án lykilmanna,“ sagði Jens Boesen þegar Aron var kynntur fyrir fjölmiðlum.

Íþróttastjórinn er engu að síður hæstánægður með að Aron sé mættur til leiks en fyrir utan að hafa gert frábæra hluti með íslenska landsliðið á EM þekkir hann vel til í danska boltanum eftir að spila og þjálfa Skjern á sínum tíma.

„Ég er gríðarlega ánægður með að Aron og hans fjölskylda hafi fundist það góð hugmynd að koma til okkar með svo skömmum fyrirvara,“ sagði Boesen.

Sjálfur heur Aron engar áhyggjur af pressunni og hlakkar til að takast á við verkefnið. „Ég þekki mjög vel til í danska boltanum og fylgist grannt með honum. Það verður því ekkert mál fyrir mig að aðlagast lífinu í Danmörku aftur,“ sagði Aron Kristjánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×