Bubba Watson var búinn að keppa í 41 móti í röð án þess að vinna síðan að hann vann Mastersmótið árið 2012. Watson endaði tveimur höggum á undan landa sínum Dustin Johnson.
Watson rétt náði niðurskurðinum á mótinu með tveimur höggum en Bubba sló ekki feilhögg eftir það. Hann fékk ekki skolla á síðustu 39 holum mótsins og lék á 64 höggum, sjö höggum undir pari, á tveimur síðustu dögum mótsins.
Bubba Watson fékk 1,2 milljónir dollara fyrir sigurinn eða um 136 milljónir íslenskra króna.
„Þetta var fyrsti sigurinn minn síðan á Mastersmótinu. Maður veit víst aldrei hvenær síðasti sigurinn kemur í hús. Það er gaman að vinna hér á Northern Trust. Ég lét biðina eftir sigri aldrei hafa áhrif á mig og hélt bara áfram að reyna að spila mitt golf," sagði Bubba Watson.
Lokastaðan á Northern Trust mótinu:
1. Bubba Watson -15
2. Dustin Johnson -13
3. Jason Allred -12
3. Brian Harman -12
5. Charl Schwartzel -11
6. Matt Every -10
6. Bryce Molder -10
6. William McGirt -10
6. George McNeill -10
10. Harris English -9
10. Brendan Steele -9
