Magnús fékk að fara heim til Eyja Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. febrúar 2014 12:58 Magnús er hér annar frá vinstri. Vísir/Stefán
Magnús Stefánsson, leikmaður ÍBV, var fluttur upp á sjúkrahús eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg í leik liðsins gegn Fram í Olísdeild karla í gær. Magnús vankaðist við höggið og fékk skurð. Hann lá í talsverðan tíma eftir en var svo borin af velli. Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV, segir þó að betur hafi farið en leit út fyrir. „Hann fékk að fara eftir skoðun í gær og gisti upp á hóteli með okkur í nótt. Hann kom svo aftur til Eyja í morgun,“ sagði Gunnar í samtali við Vísi. „Hann er nokkuð sprækur í dag en er með hausverk. Hann fékk þar að auki skurð og þurfti að sauma fyrir.“ „Það verður svo bara að koma í ljós hvað verður enda geta höfuðhögg haft langtímaáhrif eins og nýleg dæmi hafa sýnt,“ sagði Gunnar en fyrir stuttu neyddist Rakel Dögg Bragadóttir til að leggja skóna á hilluna eftir að hafa fengið heilahristing. „Læknarnir taka nú við og meta framhaldið,“ bætti hann við. Gunnar segir að leikmönnum hafi eðlilega verið brugðið við að sjá félaga sinn borinn af velli. „Það er auðvitað alltaf óhuggulegt að sjá leikmenn verða fyrir höfuðmeiðslum,“ sagði Gunnar.
Olís-deild karla Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Sport „Ekki svo að við séum að setja stein í götu hennar af því hún eignaðist barn“ Sport Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Handbolti Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa Sport Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Formúla 1 „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Körfubolti Sara tekur ekki þátt í Open og missir því af heimsleikunum Sport „Þeir geta klárað þetta án mín“ Körfubolti Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Handbolti Fleiri fréttir Valur - Fram | Meistararnir mæta toppliðinu Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Tvær landsliðskonur urðu eftir heima vegna höfuðhögga Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Sjá meira