Formúla 1

Mercedes-menn halda sér á jörðinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Mercedes-bílarnir eru líklegir til árangurs í ár.
Mercedes-bílarnir eru líklegir til árangurs í ár.
Mercedes-liðið gerir lítið úr þeim hrópum manna þessa dagana að það sé líklegast til að hampa heimsmeistaratitli bílasmiða í Formúlu 1 á komandi tímabili.

Mercedes-menn, með Lewis Hamilton og Nico Rosberg við stýrin, áttu góðu gengi að fagna á fyrstu æfingu nýs undirbúningstímabils í Jerez á spáni.

Bílar með vélar frá Mercedes náðu að keyra mun fleiri kílómetra en hinir með vélar frá hinum tveimur framleiðendunum. Mercedes var að prófa nýja 1,6 lítra V6 Turbo Hybrid-vél í fyrsta skipti og gekk vel eins og áður segir.

„Á síðastliðnum árum hafa liðin sem litu best út eftir fyrstu æfingu ekki alltaf verið besta liðið á tímabilinu,“ segir Toto Wolff, framkvæmdastjóri Mercedes-liðsins.

Ríkjandi heimsmeisturum Red Bull gekk ekki vel í Jerez en gríðarlegar reglubreytingar í Formúlunni fyrir komandi tímabil gæti orðið til þess að það fari að slaka á drottnun Sebastians Vettels og Red Bull-liðsins.

„Við verðum bara taka þessu með fyrirfara svona snemma á tímabilinu,“ segir Toto Wolff.


Tengdar fréttir

Þetta eru fáranlegar breytingar

Í gær var tilkynnt um breytingar í Formúlu 1. Stærsta breytingin er sú að tvöföld stig verða gefin í lokakeppni ársins í von um að gera keppnina um heimsmeistaratitilinn meira spennandi.

Breyttar aðstæður í Formúlu 1

Mestu reglubreytingar innan Formúlu 1 í aldarfjórðung hafa tekið gildi. Þær munu bylta ýmsu varðandi uppbyggingu Formúlu 1 bíla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×