„Við bjuggum eins og dýr“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. janúar 2014 11:42 Slavko Goluza. Vísir/Getty
Þjálfari karlalandsliðs Króatíu í handbolta var allt annað en sáttur á blaðamannafundi eftir tap sinna manna gegn gestgjöfum Dana á EM í handbolta í gær.Danir unnu sigur 29-27 og tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum á sunnudag. Króatar þurfa að sætta sig við að leika um þriðja sætið við Spánverja. „Gestgjafarnir hafa gert allt sem þeir geta til að næla í gullið, öllu hagað til fyrir þá og við bjuggum eins og dýr í þremur borgum,“ sagði Slavko Goluza á blaðamannafundinum. Þá sneri hann sér að dómurum leiksins sem hann taldi hafa verið afar hliðholla Dönum. „Leikmenn mínir féllu til jarðar eins og þetta væri keila, ekki handbolti,“ sagði Goluza. Hann bætti við að hann hefði verið í sjálfskipuðu banni í nokkur ár frá því að tjá sig um dómgæslu. Nú yrði hann að gera hlé á því.Ulrik Wilbek, þjálfari Dana, var afar hneykslaður á framkomu Goluza á blaðamannafundinum. Sá króatíski sá að sér síðar um kvöldið og sagðist hafa farið yfir strikið í hita leiksins.Úrslitaleikur Dana og Frakka hefst klukkan 16:30 á morgun. Klukkan 14:00 mætast Króatar og Spánverjar í bronsleiknum.
EM 2014 karla Handbolti Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Sjá meira