Ný nöfn á bikarinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2013 06:30 Valin í fyrsta sinn. Helgi Sveinsson og Thelma Björg Björnsdóttir með verðlaun sín í gær. Fréttablaðið/Daníel
Ný nöfn voru skrifuð á bikara íþróttafólks ársins úr röðum fatlaðra í gær en 34 ára frjálsíþróttamaður úr Ármanni og 17 ára sundkona úr ÍFR voru heiðruð við árlega viðhöfn Íþróttasambands fatlaðra í gær. Helgi Sveinsson varð heimsmeistari í spjótkasti á heimsmeistaramótinu í Lyon í Frakklandi í flokki F42 og Thelma Björg Björnsdóttir skipaði sér í sess með fremstu sundkonum heims í flokki S6 og setti alls 38 Íslandsmet á árinu.Vantar bara eitt Íslandsmet „Ég er rosalega ánægð með þetta ár en það skemmtilegasta á árinu var HM í Montréal,“ sagði Thelma Björg Björnsdóttir. Hún komst í úrslit í öllum greinum sínum á HM og náði best fimmta sæti í 400 metra skriðsundi. „Það gekk vel á HM en mér fannst 100 bringusundið standa upp úr,“ sagði Thelma Björg, en hún var ánægðari með bringusundið en 400 metra skriðsundið þar sem hún náði sínum besta árangri. Tomas Hajek, þjálfari hennar, segir framfarirnar hafa verið miklar í bringusundinu og það skipti stelpuna miklu máli. „Hún er búin að bæta sig ótrúlega mikið síðustu tvö ár,“ segir Tomas. Thelma Björg setti alls 38 Íslandsmet á árinu og á nú nánast öll metin í hennar flokki. „Ég held að hún sé búin að ná öllum Íslandsmetunum í sínum flokki nema í 100 metra flugsundinu,“ segir Tomas Hajek. Hann segir helst vanta meiri samkeppni fyrir hana hérna heima. „Ég er að vona að það komi upp einhver önnur sundkona sem ætlar sér að bæta Íslandsmetin hennar. Thelma þarf að fá meiri samkeppni því í dag er hún bara langbest,“ segir Tomas.Getur náð verðlaunum á EM En hvernig fór Thelma Björg að þessu? „Ég var bara dugleg að æfa,“ svaraði Thelma Björg og Tomas tekur undir það. „Hún vill æfa og hún vill bæta sig. Hún er líka með flotta tilfinningu fyrir vatninu. Hún getur gert meira í lauginni heldur en sundmenn sem eru ekki spastískir. Hún finnur oft sjálf hvað er best að gera,“ segir Tomas og bætir við: „Það er stór möguleiki fyrir hana að ná verðlaunum á EM á næsta ári ef hún er hress og nær að æfa vel. Hún varð þriðji hraðasti evrópski sundmaðurinn á HM í sumar og þess vegna stefnum við á ekkert minna en verðlaun á Evrópumóti,“ segir Tomas. „Þetta ár er búið að vera draumi líkast og þetta er búið að falla fullkomlega fyrir mig. Þessi verðlaun eru bara jólagjöfin mín og jólin komu fyrr hjá mér en öllum hinum. Þetta er frábært,“ segir Helgi Sveinsson himinlifandi með verðlaunin. „Það þýðir ekkert annað en stefna alla leið, annars væri ekkert gaman að þessu. Heimsmeistaramótið í júlí er hápunkturinn. Sú stund datt nánast út hjá mér og ég finn hana ekkert aftur. Ég er búinn að horfa aftur á upptöku af þessu en samt man ég ekki hvernig dagurinn var. Þetta er samt klárlega einn besti dagur sem ég hef upplifað,“ segir Helgi sem tryggði sér HM-gull í Lyon í Frakklandi í síðasta kastinu. „Ég náði þessu í síðasta kasti og þetta er eins og í einhverri lygasögu,“ segir Helgi brosandi. HM-gullið verður hins vegar aldrei tekið af honum og hann er ekki hættur.Með stór markmið „Ég er engan veginn hættur. Ég er með stór markmið en læt þau ekki uppi alveg strax,“ segir Helgi sem felldi sundmanninn Jón Margeir Sverrisson af stallinum sem íþróttamaður ársins hjá fötluðum. Jón Margeir hafði unnið þessi verðlaun þrjú ár í röð. „Það er mikill heiður fyrir mig að taka við verðlaunum frá honum. Jón Margeir er alveg ótrúlegur íþróttamaður en hann er kominn með keppinaut núna og við skulum síðan sjá til hvað ég endist lengi. Hann er ungur en ég er að verða svolítið gamall. Það er alltaf markmið að komast með honum á Ólympíuleikana 2016. Við skulum sjá hvað gerist,“ sagði Helgi.
Innlendar Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Ofursunnudagur á Sýn Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Sjá meira