

Að bjarga íslenskunni
Og ekki síst: það er löngu tímabært að vekja rækilega athygli á því þjóðþrifastarfi sem sinnt er af Máltæknisetri við furðu lítinn skilning og hvað þá stuðning þeirra stjórnmálamanna sem við búum við. Í þessu starfi er fremstur í flokki Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði við HÍ, sem annars er kunnur fyrir frjálslyndi sitt í málfarsefnum og andstöðu við málumvöndunarmenn. En hann er samt sá maður sem nú stendur í fararbroddi við að bjarga íslenskunni.
Um það snýst starf Máltækniseturs. Löngun til að íslenskan dugi áfram í nýju umhverfi. Vonandi verður þessi viðurkenning til að opna augu stjórnmálamannanna sem virðast vilja láta reka á reiðanum í þessu sem öðru. Vonandi nota þeir nú 350 ára afmæli Árna Magnússonar, sem á sínum tíma bjargaði íslenskum menningarverðmætum frá glötun, og fara að styðja myndarlega starfsemi Máltækniseturs sem gæti bjargað íslenskri tungu í því nýja samfélagi sem við okkur blasir á nýrri öld.
„Sími sem skilur þig“
Við munum í nálægri framtíð nota einhvers konar vélmenni til þess að létta undir með okkur við ýmis úrlausnarefni daglegrar tilveru, stór og smá. Við munum tala við tækin í æ ríkari mæli eftir því sem fram líða stundir. Við munum gefa þeim skipanir og þau síðan bregðast við. Málið snýst um það hvort barnabörnin okkar nota íslensku þegar þau tala við ryksuguna sína, sláttuvélina, símann eða bílinn, sem vonandi á einhvern tímann eftir að komast af því 19. aldar stigi sem honum hefur verið haldið á fram á síðustu ár.
Nú er ástandið þannig að ekki má einu sinni vekja athygli á því að Samsung-símar skilja okkur þegar við tölum íslensku við þá en símar frá Apple gera það ekki. Auglýsing sem vakti athygli á þessari grundvallarstaðreynd á spaugilegan hátt var umsvifalaust bönnuð af samkeppnisyfirvöldum, rétt eins og þetta eigi að vera feimnismál eða skipti engu máli. En þetta skiptir máli. Þetta skiptir höfuðmáli.
Sagan kennir okkur að tungumál þarf að nota á sem flestum sviðum tilverunnar eigi það að lifa. Hvers vegna ættum við að láta framtíðina ráðast af dyntum einhverra millistjórnenda hjá Apple-fyrirtækinu eða öðrum slíkum heimsvaldafyrirtækjum sem vilja að öll mannleg starfsemi fari fram á þeim forsendum sem þeim þóknast að útdeila – og rukka svo fyrir.
Ef við tölum alltaf ensku við ryksuguna okkar, bílinn, sláttuvélina, uppþvottavélina og sturtuna og ef við notum alltaf ensku í umhverfi tölvu og síma og tækni – þá hefur enskan þokast inn á ný svið tilveru okkar, tekið yfir svið þar sem við notuðum áður íslensku.
Svona deyja tungumál. Á því færri sviðum sem þau eru notuð er þeim mun meiri hætta á því að þau trénist upp og deyi. Þau deyja ekki úr þágufallssýki eða hljóðvillu heldur af notkunarleysi. Þau deyja þegar þau eru bara til hátíðarbrigða, bara til spari. Tungumálið er því aðeins lifandi að það sé notað í daglegu lífi í hinu allra hversdagslegasta samhengi.
Frumskylda íslenskra stjórnmálamanna
Og er það ekki allt í lagi, spyrja sennilega einhverjir – þó að íslenskan hverfi? Nei. Ef við Íslendingar varðveitum ekki þetta tungumál gerir það enginn annar. Þá fara menningarverðmæti forgörðum. Mannkynið verður einu tungumálinu fátækara, einum hugsunarhættinum, einni tegundinni af mennsku og aðferð við að fást við heiminn. Þegar tungumál deyr hverfur með því heill menningarheimur. Íslenskan er verðmæti í sjálfu sér.
Það er frumskylda íslenskra stjórnmálamanna að stuðla að því að íslenska lifi áfram við nýjar aðstæður. Þetta er hægt að gera og aðrar þjóðir allt í kringum okkur gera þetta unnvörpum: það þarf að safna orðaforða og tæknivæða hann. Þetta er tímafrekt nákvæmnisverk sem kallar á vissa sérþekkingu – en þetta er alveg gerlegt.
Það þarf viðhorfsbreytingu hjá sumum fyrirtækjum, eins og til að mynda Apple á Íslandi sem á ekki að lögsækja keppinauta fyrir að benda á að þeir eru komnir fram úr þeim á því sviði að aðlaga umhverfi sitt íslenskri tungu – heldur að mæta þeim í samkeppni og gera betur.
Stjórnmálamennirnir og embættismennirnir í Menntamálaráðuneytinu verða að rumska. Til að hægt sé að inna af hendi þetta starf þarf sem sé svolitla peninga – alls ekki mikla; við erum ekkert að tala um jarðgangakostnað hér. Eins og málum er háttað um þessar mundir fær þessi starfsemi ekki neitt fé – ekki krónu. Það fær ekki heldur neitt úr rannsóknarsjóðum enda ekki hægt að sýna fram á að frumlegar niðurstöður komi út úr starfinu: allt liggur fyrir um það sem þarf að gera.
Og þá er bara að drífa í þessu. Það er ekki nóg að veita mönnum verðlaun og klapp á bakið.
Skoðun

Að taka ekki mark á sjálfum sér
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Betri borg
Alexandra Briem skrifar

Að eiga sæti við borðið
Grímur Grímsson skrifar

Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði
Karl Héðinn Kristjánsson skrifar

Íþróttir eru lykilinn
Willum Þór Þórsson skrifar

Framtíð safna í ferðaþjónustu
Guðrún D. Whitehead skrifar

Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp?
Einar Baldvin Árnason skrifar

Að skapa framtíð úr fortíð
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Stærð er ekki mæld í sentimetrum
Sigmar Guðmundsson skrifar

Áður en íslenskan leysist upp
Gamithra Marga skrifar

Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna
Samúel Torfi Pétursson skrifar

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Tómas Ellert Tómasson skrifar

Hverjum þjónar nýsköpunin?
Halldóra Mogensen skrifar

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Eden Frost Kjartansbur skrifar

Þegar ríkið fer á sjóinn
Svanur Guðmundsson skrifar

Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar
Guðbjörg Pálsdóttir skrifar

Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk
Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar

Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni
Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga
Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar

Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Í lífshættu eftir ofbeldi
Jokka G Birnudóttir skrifar

Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við?
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra?
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni
Auður Kjartansdóttir skrifar

Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi
Ingvar Stefánsson skrifar

Raddir fanga
Helgi Gunnlaugsson skrifar

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar